BLÆÐINGAR
Vítamínpakkarnir okkar eru þróaðir frá grunni til að styðja ólíkar þarfir kvenna á mismunandi lífsskeiðum. Hver pakki er mánaðarskammtur og inniheldur 30 dagpakka, einn pakki fyrir hvern dag sem tryggir þér öll mikilvægu næringarefnin án fyrirhafnar.
- Notaðu síurnar (e. filters) til að hjálpa þér að finna rétta pakkann fyrir þig og hentar þínu lífsskeiði, þörfum eða markmiði.
- Þú getur líka notað þetta tól hérna til að hjálpa þér að finna rétta pakkann fyrir þig.
Reglulegur tíðahringur skiptir miklu máli því hann tengist öllum kerfum kvenlíkamans og getur haft veruleg áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu. Þetta hárfína ferli krefur líkamann um ýmis næringarefni, góðan svefn og að halda streitu í lágmarki.
Þegar fer að lengjast milli blæðinga og þegar þær hætta alveg hafa gildi þessara mikilvægu hormóna lækkað umtalsvert og haldast lág út ævina. Þessi hormón hafa ekki bara viðhaldið frjósemi og reglulegum tíðahring heldur líka haft verndandi áhrif s.s. stutt við uppbyggingu beina, vöðva, viðhaldið heilbrigði hjartans og heilans og einnig veitt ákveðna vörn gegn sykursýki.
Þú finnur strax muninn
Hvert næringarefni í bætiefnin okkar er valið af kostgæfni, þannig að líkaminn þekkir og nýtir næringarefnið vel og örugglega.
Í Venju notum við svokölluð bio-available form af vítamínum þegar þess er kostur sem eru mun dýrari en kemísku vítamínin sem langflestir nota í sínar vörur.
Bio-available þýðir að vítamínin eru “virk” og líkaminn getur strax nýtt þau á rétta staði án þess að þurfa kosta til orku eða fara af stað í umbreytingaferli svo hægt sé að nýta næringuna.
Þess vegna finna konur strax mun á sér eftir að taka Venju.