30 dagpakkar | fæðubótarefni

Create

Versla

7.990 kr. mánaðarleg áskrift

eða 9.990 kr. stakur pakki

Meðganga vika 14-42
Vika 0-6 eftir fæðingu

Create er þín daglega vítamínrútína. Pakkinn inniheldur sérstaklega samsett bætiefni sem eru þróuð frá grunni til að styðja þarfir kvenna frá öðrum þriðjungi meðgöngu og framyfir fæðingu. 

Konur sem eru á öðrum og þriðja þriðjungi meðgöngu og konur á fyrstu 6 vikum eftir fæðingu. 


  • Sparaðu 20% með áskrift
  • Frí sending á Dropp stað
  • Þú stjórnar sjálf tíðni sendinga
  • Bio-available | NON-GMO | Clean label | Þróuð frá grunni fyrir konur

Product information

Create er þín daglega vítamínrútína. Pakkinn inniheldur sérstaklega samsett bætiefni sem eru þróuð frá grunni til að styðja þarfir kvenna frá öðrum þriðjungi meðgöngu og framyfir fæðingu. 

Hver dagpakki innheldur 6 hylki: 2x core essential plus fjölvítamín, 2x vegan omega 3, 2x magnesium bisglycinate. 

  • Core essential plus fjölvítamínið er sérþróað til að styðja næringarþörf kvenna á þessu lífsskeiði en á þessum tíma eykst næringarþörf ýmissa næringarefna til muna. Create inniheldur vandlega valin næringarefni í réttu magni og á réttu formi sem líkaminn nýtir best. Inniheldur m.a. 400 mcg fólat á formi sem veitir hámarksupptöku og 200 mg kólín sem skortir oft í fjölvítamín. 
  • Omega-3 úr algae. Inniheldur æskileg hlutföll DHA/EPA (2:1). Inntaka móður á DHA stuðlar að eðlilegum þroska heila og augna hjá fóstrum. Sérstaklega mikilvægt á þessum tíma meðgöngu og eftir fæðingu og Create inniheldur því aukið magn Omega-3. 
  • Magnesium bisglycinate hefur frábæra upptöku í líkamanum og hefur ekki laxerandi áhrif. Magnesíum er þekkt jákvæð áhrif á svefngæði sem og jákvæð áhrif á fótapirring sem er gjarnan fylgikvilli meðgöngu. 

Ráðleggingar um inntöku: Einn dagpakki á dag með mat og fullu glasi af vatni.

 

CORE ESSENTIAL MULTIVITAMIN PLUS

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 hylki

Næringarupplýsingar

Innihald í ráðlögðum dagskammti

Magn

%RDS á meðgöngu*

Bíótín

40 mcg

100%

Kopar (copper citrate)

800 mcg

80%

Kalsíum (calcium citrate)

150 mg

16%

Kólín (choline bitartrate)

200 mg

42%

Fólat ((6S)-5-MTHF*** glucosamine salt (Quatrefolic®))

400 mcg

67%

Joð (potassium iodide)

150 mcg

75%

Járn (iron bisglycinate)

20 mg

77%

B2-vítamín (riboflavin 5’-phosphate)

1,9 mg

100%

B5-vítamín (calcium pantothenate)

1,0 mg

20%

B6-vítamín (pyridoxal 5’-phosphate)

0,4 mg

21%

B12-vítamín (methylcobalamin)

200 mcg

4444%

C-vítamín (ascorbic acid)

125 mg

119%

D3-vítamín (cholecalciferol from lichen (vegan))

25 mcg (1000 IU)

250%

E-vítamín (natural mixed tocopherols)

2,0 α-TJ

18%

K2-vítamín (menaquinone-7 (K2VITAL®))

60 mcg

75%

Selen (50% selenomethionine, 50% sodium selenite)

35 mcg

39%

Sink (zinc bisglycinate chelate)

11 mg

97%

Virk innihaldsefni: Choline bitartrate, calcium citrate, ascorbic acid, iron bisglycinate chelate, zinc bisglycinate chelate, natural mixed tocopherols, riboflavin 5‘-phosphate, calcium pantothenate, copper citrate, (6s)-5-methyltetrahydrofolate glucosamine salt (Quatrefolic®), pyridoxal 5-'phosphate, methylcobalamin, potassium iodide, menaquinone-7 (K2VITAL®), biotin, cholecalciferol (vegan), selenomethionine, sodium selenite.

Önnur innihaldsefni: HPMC (hydroxypropylmethylcellulose) vegan capsule, rice flour (carrier), medium chain triglyceride oil powder from coconut (anticaking agent), Nu-FLOW® natural rice concentrate (anticaking agent).

Quatrefolic® er skrásett vörumerki Gnosis by Lesaffre.

 

VEGAN OMEGA 3 FROM ALGAE

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 hylki

Næringarupplýsingar

Innihald í ráðlögðum dagskammti

Magn

%RDS á meðgöngu*

Omega-3 fitusýrur (úr smáþörungum)

1000 mg

**

 

DHA

300 mg

**

 

EPA

150 mg

**

Virk innihaldsefni: Vegan omega 3 from microalgae.

Önnur innihaldsefni: Hypromellose capsule.

 

MAGNESIUM BISGLYCINATE

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 hylki

Næringarupplýsingar

Innihald í ráðlögðum dagskammti

Magn

%RDS á meðgöngu*

Magnesíum (magnesium bisglycinate)

200 mg

67%

Virk innihaldsefni: Magnesium bisglycinate.

Önnur innihaldsefni: HPMC (hydroxypropylmethylcellulose) vegan capsule, rice flour (carrier), medium chain triglyceride oil powder from coconut (anticaking agent), Nu-FLOW® natural rice concentrate (anticaking agent).

 

Neytið ekki meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.

Neysla fæðubótarefna kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.

Geymsla: Geymist á þurrum stað, varið gegn hita og ljósi. Geymið þar sem börn ná og sjá ekki til.

Eins og með önnur fæðubótarefni skal leita ráðlegginga læknis fyrir notkun ef tekin eru blóðþynnandi lyf eða annarskonar lyf.

Framleitt í Hollandi fyrir Venju bætiefni ehf.

Pakkað af Venju bætiefni ehf. í Matís ohf., Vínlandsleið 14, 113 Reykjavík.

Án eggja, án fisks, án hveiti, glútens og gers, án jarðhneta, án mjólkur, án soja.

 

 

*Samkvæmt Nordic Nutrition Recommendations 2023.

***MTHF = Methyltetrahydrofolate

Hvað einkennir þetta lífsskeið?  

Það er fátt jafn valdeflandi og að þekkja vel inn á eigin líkama

🌪️ Hormónastarfsemin

Á fyrsta þriðjungi meðgöngu rísa gildi estrógens og prógesteróns jafnt og þétt. Þegar meðganga hefur náð 20 vikum taka þau kipp og rísa dramatískt til þess að styðja við frekari vöxt fóstursins. Gildi þeirra ná hápunkti undir lok meðgöngu og eru þá gildi estrógens um 6-falt hærri en áður en konan varð barnshafandi. Þessi mikla aukning á estrógen og prógesterón á tímabilinu getur haft í för með sér ýmis óþægindi á borð við bjúg, brjóstsviða, hægðatregðu og skapsveiflur.

Strax eftir fæðingu taka hormónin mikla dýfu og haldast í algjöru lágmarki, líkt og hjá konu sem hefur farið í gegnum tíðalok (e. menopause). Að finna fyrir andlegri lægð er óhjákvæmileg afleiðing þessa miklu hormónadýfu og fyrir sumar verður þessi lægð að fæðingarþunglyndi. Hárlos, svefnleysi og leggangaþurrkur eru líka algeng einkenni sem konur finna á þessum tíma.

🥗 Næringarþörfin mín núna

Frá öðrum þriðjungi meðgöngu (e. second trimester) fer blóðmagn að aukast umtalsvert en talið er að það geti að jafnaði verið 50% meira magn en fyrir meðgöngu. Þetta veldur því að járnþörfin eykst verulega á þessu tímabili. Því er mikilvægt fyrir konur að huga að járnþörf á þessum tíma meðgöngu og ekki síst vegna þess að í fæðingu og við úthreinsun missir kona töluvert blóð. Ráðlagður dagskammtur af járni fyrir konur á meðgöngu er 27 mg/dag sem er tæplega 50% meiri en hjá konum sem eru ekki barnshafandi. Íslenskar konur á barneignaraldri fá að meðaltali 8,9 mg/dag úr fæðunni. Í Create pakkanum er aukið járnmagn til að mæta þessari auknu þörf á járni. Járn bisglycinate er þekkt fyrir góða upptöku og lágmarks aukaverkanir svo sem hægðatregðu og magaóþægindi.

Kólín er mjög mikilvægt næringarefni á meðgöngu og á fyrstu 1000 dögum í lífi barns. Kólín gegnir mikilvægu hlutverki í að koma nægum Omega-3 og DHA fitusýrum til fósturs á nýtanlegu formi og einnig ýmissi líkamsstarfsemi svo sem starfsemi lifrar, heilbrigðum þroska heila, vöðvastarfsemi, starfsemi taugakerfis og í efnaskiptum. Skortur á kólíni getur m.a. haft áhrif á starfsemi heilans og úrvinnslu minni hjá ungbörnum. Lifrin framleiðir aðeins lítið magn af því kólíni sem við þurfum daglega og því treystir líkaminn á að fá nóg af því úr fæðunni. Næringarþörf á kólíni eykst talsvert á meðgöngu og á meðan brjóstagjöf stendur. Hér á landi eru ekki til gögn um neyslu á kólíni en ef horft er til Bandaríkjanna fá konur á barneignaraldri þar aðeins tæp 60% af ráðlögðum dagskammti á þessu tímabili úr fæðu.

Gríðarleg orka fer í að styðja við vöxt og þroska barnsins og því eykst næringarþörf ýmissa annarra næringarefna umtalsvert á meðgöngu t.d. B2-, B6-, B12-, C-, K-vítamín, fólat, sink, kopar, joð og selen.

Gögn um mataræði íslenskra kvenna sýna að konur á barneignaraldri ná ekki ráðlögðum dagskammti þessa lífsskeiðs úr fæðu af D-vítamíni, E-vítamíni, B5-vítamíni, fólat, C-vítamíni, kalki, magnesíum, joð og selen.

Konur sem borða lítið af dýraafurðum eru líklegri til þess að innbyrða minna af B12-vítamíni, joði og járni úr fæðu.

🌱 Næringarefni sem styðja mig

MEÐGANGA

Fólat stuðlar að vefjavexti hjá þunguðum konum.

ÞROSKI HEILA OG AUGNA Í FÓSTRUM

Inntaka móður á DHA stuðlar að eðlilegum þroska heila og augna í fóstrum.

ÞREYTA

Fólat, járn, magnesíum, B2-, B5-. B6-, B12- og C- vítamín stuðla að því að draga úr þreytu.

AUKIÐ BLÓÐMAGN

Járn stuðlar að eðlilegri myndun rauðra blóðkorna og blóðrauða.

TAUGAKERFI

Bíótín, kopar, joð, magnesíum, B2-, B12 og C-vítamín stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfisins.

ANDLEG HEILSA

Bíótín, fólat, magnesíum, B12- og C-vítamín stuðla að eðlilegri sálfræðilegri starfsemi.

MINNI OG HEILAÞOKA

Joð, járn og sink stuðla að eðlilegri vitsmunastarfsemi.

HJARTA- OG ÆÐAKERFI

Kólín, fólat og B12-vítamín stuðla að eðlilegum efnaskiptum að því er varðar hómósystein.

BEIN

Kalk, magnesíum, sink, D- og K- vítamín stuðla að viðhaldi eðlilegra beina.

ÓNÆMISKERFI

Kopar, fólat, járn, selen, sink, B12-, C- og D-vítamín stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.

Einfaldaðu líf þitt
Settu þig í fyrsta sæti
Einfaldaðu líf þitt
Settu þig í fyrsta sæti
Einfaldaðu líf þitt
Settu þig í fyrsta sæti

Konur mæla með

Einfaldaðu líf þitt

Uppgötvaðu vítamínrútínu sem virkar

Við viljum að þú notir tímann í eitthvað allt annað en að stúdera bætiefni eða hafa skápana fulla af óþarfa bætiefnum. Vörulínan okkar er hönnuð fyrir konur og með það að markmiði að einfalda líf þitt.
Vörulínan okkar samanstendur af sjö pökkum fyrir mismunandi lífsskeið og innihalda öll mikilvægu næringarefnin sem eru vandlega valin fyrir ólíkar þarfir kvenna. Í hverjum pakka eru þrjátíu dagpakkar sem auðvelda þér reglubundna inntöku.
Hver dagpakki inniheldur öll mikilvægu næringarefnin sem styðja þarfir þínar.
.thb-secondary-cart { display:none; }