Hvernig við veljum innihaldið
Hvert innihaldsefni er valið af ástæðu.
Við bætum ekki hráefnum í dagpakkann bara til að lengja innihaldslistann. Hvert vítamín, steinefni eða annað næringarefni þarf að hafa skýrt hlutverk og passa við það lífsskeið sem dagpakkinn er hannaður fyrir.
Þegar við setjum saman blöndurnar okkar horfum við meðal annars til þess að innihaldsefnin:
- styðji þær næringarþarfir sem skipta máli á hverju lífsskeiði
- eigi sér stoð í rannsóknum og leyfðum heilsufullyrðingum
- vinni vel saman sem hluti af heildinni
Við skoðum líka hvernig næringarefni hafa áhrif hvert á annað. Ef tvö efni geta dregið úr upptöku hvort annars veljum við form og skammta sem draga eins og hægt er úr þeim áhrifum. Hráefni sem uppfylla ekki kröfur okkar um öryggi eða eru ekki leyfð á okkar mörkuðum eiga einfaldlega ekki heima í Venju.



