Hvað er í pakkanum mínum Erupt? endometriosis

Erupt er þín daglega vítamínrútína. Pakkinn inniheldur sérstaklega samsett bætiefni sem eru þróuð frá grunni til að styðja þarfir kvenna með mikla túrverki og konur með endómetríósu

Hver dagpakki innheldur 7 hylki: 2x core essential plus fjölvítamín, 1x vegan omega 3, 2x magnesium bisglycinate, 2x L-Cysteine & Curcumin with Pycnogenol®.

  • Core essential plus fjölvítamínið er sérþróað til að styðja næringarþörf kvenna á þessu lífsskeiði og inniheldur vandlega valin næringarefni í réttu magni og á réttu formi sem líkaminn nýtir best. Inniheldur m.a. öflugan styrk sink en rannsóknir hafa bent til þess að konur með endómetríósu séu með lægri gildi af sinki í blóði en aðrir hópar en sink hefur áhrif á mörg ferli í líkamanum svo sem bólguviðbragð og oxun. Inniheldur einnig 2000 IU af D3-vítamíni en rannsóknir hafa einnig gefið til kynna að konur með endómetríósu séu með lægri gildi af D-vítamíni í blóði en aðrir hópar.
  • Omega-3 úr algae. Inniheldur æskileg hlutföll DHA/EPA (2:1).
  • Magnesium bisglycinate er magnesíum bundið við amínósýruna glycine og hefur frábæra upptöku í líkamanum. Magnesíum bisglycinate er þekkt fyrir jákvæð áhrif á tíðaverk, svefngæði og insúlínnæmni.
  • L-Cysteine er amínósýra sem er mikilvæg við myndun andoxunarefnisins glutathione sem gegnir mikilvægu hlutverki í afeitrunarferli líkamans m.a. umframmagns estrógens. NAC kemur frá L-Cysteine og hefur sýnt jákvæð áhrif hjá konum með endómetríósu.
  • Túrmerik (e. curcumin) er þekkt fyrir jákvæð áhrif á bólguviðbragð líkamans og hefur sýnt jákvæð áhrif hjá konum með tíðaverki og endómetríósu.
  • Pycnogenol® er öflugt andoxunarefni. Áhrif Pycnogenol® hafa verið mikið rannsökuð síðustu 40 ár með yfir 160 klínískum rannsóknum og 450 vísindagreinum. Rannsóknir hafa m.a. verið gerðar á áhrifum Pycnogenol® á einkenni kvenna með tíðaverki og endómetríósu.
  • Meltingarensím bromelain og papain stuðla að því að minnka uppþembu og tíðaverki.