Embrace er þín daglega vítamínrútína. Pakkinn inniheldur sérstaklega samsett bætiefni sem eru þróuð frá grunni til að styðja þarfir kvenna undir lok breytingaskeiðs og þær sem hafa lokið breytingaskeiði.
Hver dagpakki innheldur 7 hylki: 2x core essential iron free plus fjölvítamín, 1x vegan omega 3, 2x magnesium bisglycinate, 2x sea buckthorn oil.
- Core essential iron free plus fjölvítamínið er sérþróað til að styðja næringarþörf kvenna á þessu lífsskeiði og inniheldur vandlega valin næringarefni í réttu magni og á réttu formi sem líkaminn nýtir best. Inniheldur m.a öflugan styrk næringarefna sem styðja við bein og augnheilsu.
- Pycnogenol® er öflugt andoxunarefni. Áhrif Pycnogenol® hafa verið mikið rannsökuð síðustu 40 ár með yfir 160 klínískum rannsóknum og 450 vísindagreinum. Rannsóknir hafa m.a. verið gerðar á áhrifum Pycnogenol® á einkenni breytingaskeiðs s.s. hitakóf, svefntruflanir, minnkaða kynhvöt, leggangaþurrk, minni og einbeitingu. Rannsóknir benda einnig til að geti haft jákvæð áhrif á liðverki, augnheilsu og blóðsykurstjórnun.
- Omega-3 úr algae. Inniheldur æskilegt hlutfall DHA:EPA (2:1). DHA stuðlar að viðhaldi eðlilegrar starfsemi heilans og viðhaldi eðlilegrar sjónar.
- Magnesium bisglycinate er magnesíum bundið við amínósýruna glycine og hefur frábæra upptöku í líkamanum. Magnesíum er þekkt fyrir jákvæð áhrif á svefngæði og slökun. Glycine aminósýran er talin hafa jákvæð áhrif á svefn og blóðsykurstjórnun.
- Hafþyrnisolía (e. sea buckthorn) er rík af Omega-7 olíu en Omega-7 olía er talin hafa jákvæð áhrif á slímhúð m.a. einkenni leggangaþurrks og augnþurrks.