„Ég fékk sjálf bara algjört ógeð á því hvað fæðubótabransinn nýtur sín í því að vera flókinn og rugla svolítið í neytendum. Þetta er bara flókið fyrir alla að standa fyrir framan vítamín hillurnar sem eru með 700 dollur og reyna að átta sig á hvað maður á að velja hverju sinni“, segir Sigríður.
Rakel tekur undir og segir: „Svo er þetta svo oft tilboðsdrifið og fólk er að hrúga ofan í körfurnar allskonar bætiefnum sem þau vita ekki hvort þau þurfa á að halda eða til hvers það er og svo endar þetta bara rykfallið upp í skáp. Þetta er líka tískudrifið - þessi áhrifavaldur er að mæla með þessu og þess vegna kaupir þú þetta en það bara á ekki alveg við í þessum flokki“.
Í hlekknum að neðan má lesa viðtalið í heild og hlusta á hlaðvarpsþáttinn Spegilmyndina, hlaðvarpsþátt Marínar Möndu þar sem þær fara yfir allar áskoranir sem konur upplifa yfir lífsleiðina, misvísandi skilaboð sem dynja stöðugt á konum sem tengjast bætiefnaheiminum og auðvitað söguna á bak við Venju.