Skip to content
Hvernig breytist það sem líkaminn þarf í gegnum barneignarferlið?

Hvernig breytist það sem líkaminn þarf í gegnum barneignarferlið?

Fyrir þær sem eru farnar að huga að barneignum getur þetta verið ótrúlega spennandi tími. Ferlið sem konur ganga í gegnum, frá undirbúningi fyrir meðgöngu, í gegnum meðgönguna og fæðingu og yfir í brjóstagjöf, er magnað. Á sama tíma getur mikil óvissa fylgt öllu því nýja sem barneignarferlið hefur í för með sér.

Ferlið er líka ólíkt hjá hverri og einni. Stundum gerist þetta óvænt og gengur eins og í sögu, stundum er meðganga langþráð og skipulögð og stundum getur leiðin að henni verið krefjandi.

En þegar þungunarprófið verður jákvætt vakna oft enn fleiri spurningar.

Hvað á ég að borða? Hvaða mat á ég að forðast? Er eðlilegt að vera svona þreytt? Er morgunógleði í alvörunni bara á morgnana? Hvenær á ég að panta fyrsta tímann og hvert á ég að fara? Má ég halda áfram að æfa? Þarf ég í alvörunni allt sem allir á TikTok segja að ég þurfi?

Síðan eru það eru bætiefnin. Fólat, DHA, járn, joð og D-vítamín. Hvenær á ég að byrja? Hversu mikið þarf ég? Breytist það sem ég þarf eftir því sem líður á meðgönguna? Og hvað með brjóstagjöf?

Oft fylgja alls konar ráð úr öllum áttum, frá fólkinu í kringum okkur og ekki síst öllu því sem við finnum á netinu. Með öllum þessum spurningum getur Google fljótt orðið bæði manns besti vinur og versti óvinur.

Við getum auðvitað ekki svarað öllum spurningunum sem fylgja barneignarferlinu en það er eitt sem við getum tekið af þínum herðum: Næringarstuðninginn.

Við höfum þegar unnið rannsóknarvinnuna, skoðað ráðleggingarnar, magnið og formin svo þú þurfir ekki að byrja frá grunni.

Líkaminn þinn gengur í gegnum ótrúlegar breytingar á þessu tímabili og þarf góða næringu til að takast á við þetta orkukrefjandi ferli. En það sem hann þarf er ekki alltaf það sama.

Í dag vitum við mun meira um hvernig næringarþarfir breytast í gegnum barneignarferlið. Nýjustu norrænu næringarráðleggingarnar (NNR 2023) taka meðal annars mið af ólíkum næringarþörfum eftir þriðjungum meðgöngu.

Og næringin skiptir máli fyrr en þig grunar.

Margar konur eru komnar af stað inn í meðgönguna með takmarkaðan næringarforða til að byrja með. Landskönnun á mataræði Íslendinga sýnir til dæmis að konur á barneignaraldri fá almennt ekki nóg af fólati, járni og joði úr fæðunni. D-vítamín er annað næringarefni sem getur verið erfitt að fá nóg af, sérstaklega hér á Íslandi. Sem þýðir að fyrir margar byrjar þetta orkukrefjandi ferli á ákveðnum halla.

Fólat er skýrasta dæmið um af hverju tímasetningin skiptir máli. Strax á fyrstu vikum meðgöngu oft áður en þú veist sjálf að þú sért ólétt, er grunnurinn lagður að heila og mænu barnsins. Þetta ferli kallast lokun taugapípunnar. Lágur fólatforði hjá móður er þekktur áhættuþáttur fyrir galla í taugapípu fósturs og fólínsýra eykur fólatgildi í blóði. Það er ástæðan fyrir því að konum á barneignaraldri er ráðlagt er að hefja inntöku á fólínsýru um þremur mánuðum áður en getnaður á sér stað.

Á sama tíma eru hjartað, mænan og fleiri af helstu líffærum barnsins að taka á sig mynd. Og til að byggja allt þetta nýja notar líkaminn þann næringarforða sem þegar er til staðar hjá þér. Þess vegna skiptir svo miklu að fara inn í meðgönguna með góðan næringarforða og Prepare er hannaður einmitt fyrir þetta tímabil, frá undirbúningi og út fyrsta þriðjung.

Það er því ótrúlega mikilvægt að fara inn í meðgöngu með góðan næringargrunn. Það má að einhverju leyti líkja þessu við undirbúning fyrir maraþon. Við myndum ekki bíða þar til við komum á ráslínuna með að huga að því hvernig við nærum líkamann fyrir hlaupið. Góður næringargrunnur á meðgöngu snýst ekki um fullkomið mataræði heldur að huga að því að líkaminn þinn fái þau næringarefni sem hann þarf fyrir það mikla verkefni sem er fram undan hjá þér.

Maturinn er og á alltaf að vera okkar helsta uppspretta næringarefna. En eins og við nefndum að ofan eru margar komnar af stað með takmarkaðan næringarforða og þarfirnar halda svo áfram að breytast eftir því sem líður á meðgönguna. Við stofnuðum Venju með þetta að leiðarljósi: við vildum vita hvað konum vantar úr fæðunni og hvernig þörfin breytist á hverju tímabili, og hanna pakkana okkar út frá því. Þannig geta bætiefnin sem þú tekur hjálpað til við að brúa bilið samhliða góðu og fjölbreyttu mataræði.

Eftir því sem líður á meðgönguna breytist svo verkefnið sem líkaminn stendur frammi fyrir. Þú ert ekki bara að ganga með barn sem stækkar og þroskast heldur er líkaminn líka að mynda fylgju, byggja upp nýjan vef og auka blóðmagn til að styðja við þig og barnið. Hjartað, blóðrás og efnaskipti aðlagast líka eftir því sem líður á meðgönguna.

Með þessum breytingum breytast næringarþarfirnar líka. Járn er gott dæmi. Þegar blóðmagnið eykst þarf líkaminn meira járn til að styðja við eðlilega blóðmyndun. Þörfin fyrir önnur næringarefni breytist líka eftir því sem barnið vex og þroskast. Þess vegna er formúlan sem fylgir þér ekki sú sama og í upphafi meðgöngu frá 14. viku tekur Create við, hannað einmitt utan um þessar breytingar.

Síðan fæðist barnið en næringarþörfin þín fer ekki bara aftur á þann stað sem hún var fyrir meðgöngu. Ef þú ert með barn á brjósti tekur nýtt orkukrefjandi tímabil við. Líkaminn er að jafna sig eftir meðgöngu og fæðingu á sama tíma og hann framleiðir mjólk til að næra barnið. Rannsóknir á orkunotkun sýna líka aukna orkunotkun við brjóstagjöf, meðal annars vegna orkunnar sem fer í mjólkurframleiðsluna. Nurture tekur því við á þessu tímabili með áherslu á það sem líkaminn þinn þarf í brjóstagjöf.

Þegar við horfum á barneignarferlið í heild er líkaminn því að takast á við ólík verkefni á hverju tímabili. Fyrst undirbúninginn og fyrstu stig þroskans, síðan mánuði af vexti og breytingum og að lokum ef þú ert með barn á brjósti framleiðslu á brjóstamjólk til að næra barnið.

Það er því ekkert skrýtið að næringarþörfin sé ekki nákvæmlega sú sama allan tímann.

Það er hugsunin á bak við vörulínuna okkar fyrir barneignarferlið:

Prepare • Create • Nurture

Prepare er fyrir þig sem ert að undirbúa þig fyrir meðgöngu eða ert á fyrsta þriðjungi. Create tekur við frá 14. viku og fylgir þér út meðgönguna. Nurture er svo fyrir tímabilið eftir fæðingu á meðan brjóstagjöf stendur.

Við höfum skoðað næringarráðleggingarnar, hvað konur fá úr mataræðinu og hvaða næringarefni skipta máli á hverju tímabili, í hvaða magni og á hvaða formi. Þannig viljum við auðvelda þér að huga vel að næringunni á hverju tímabili án þess að þú þurfir sjálf að kafa ofan í allt sem snýr að bætiefnum.

Þú munt ekki hafa svör við öllu þegar þú leggur af stað í þetta ferli, það hefur engin. Leiðin þín að barneignum getur verið óvænt, langþráð, krefjandi, eða allt þar á milli en við tökum næringarstuðninginn á hverju tímabili að okkur.

Finndu þitt tímabil Skoðaðu Prepare, Create og Nurture.