Skip to content
Hvað þýða gæði í fæðubótarefnum? Frá samsetningu til lotuprófana

Hvað þýða gæði í fæðubótarefnum? Frá samsetningu til lotuprófana

Gæði fæðubótarefna snúast um heildina: fyrir hverja varan er hönnuð, hvaða næringarefni eru valin, í hvaða magni og formi, og hvernig varan er framleidd og prófuð. Enginn einn þáttur segir alla söguna.

Hjá Venju hugsum við þetta einfaldlega:

Rétt næringarefni, í réttu magni, á réttum tíma.

Þess vegna byrjar vandað fæðubótarefni ekki á spurningunni:

Hversu mörgu getum við komið í eina töflu?

Það byrjar á annarri spurningu:

Fyrir hverja erum við að hanna?

Það skiptir meira máli en langur innihaldslisti eða stórar tölur á næringartöflu.

Næringarþarfir kvenna eru ekki alveg þær sömu alla ævi. Tíðablæðingar, undirbúningur fyrir getnað, meðganga, brjóstagjöf og tíðahvörf geta öll haft áhrif á hvaða næringarefni skipta sérstaklega máli og í hvaða magni.

Þess vegna byrjum við hjá Venju á konunni.

Síðan byggjum við samsetninguna.

Af hverju skiptir máli að hanna fæðubótarefni sérstaklega fyrir konur?

Það er auðvelt að setja „fyrir konur“ framan á umbúðir.

En fyrir okkur þarf það að þýða meira en það.

Það á að sjást í samsetningunni.

Kona með reglulegar tíðablæðingar hefur til dæmis ekki endilega sömu næringarþarfir og kona eftir tíðahvörf.

Þarfirnar geta líka breyst á meðgöngu og við brjóstagjöf.

Sama kona getur því þurft ólíka næringu á mismunandi tímum lífsins.

Það þýðir ekki að allt þurfi stöðugt að breytast.

En það þýðir að ein almenn formúla þarf ekki að endurspegla þarfir konu á öllum stigum lífsins.

Þetta er ein af grunnhugmyndunum á bak við Venju.

Rétt næringarefni, í réttu magni, á réttum tíma.

Hvað á vandað fæðubótarefni að innihalda?

Fleiri innihaldsefni þýða ekki sjálfkrafa meiri gæði.

Hvert næringarefni þarf að eiga erindi í samsetninguna.

Við viljum geta svarað einni einfaldri spurningu um hvert þeirra:

Af hverju er þetta hér?

Ekki vegna þess að það sé vinsælt.

Ekki bara vegna þess að það líti vel út á innihaldslista.

Og ekki bara svo hægt sé að segja að varan innihaldi það.

Hjá Venju horfum við meðal annars á:

  • hvaða lífsskeið eða þörf dagpakkinn er hannaður fyrir
  • opinberar næringarráðleggingar
  • hvað konur fá að jafnaði úr fæðunni
  • rannsóknir sem eiga við um samsetninguna
  • form og magn næringarefnanna
  • hvernig þau passa saman
  • örugg efri mörk

Stundum er rétt að hafa meira af ákveðnu næringarefni.

Stundum minna.

Og stundum er góð ákvörðun að sleppa því alveg.

Meira er ekki sjálfkrafa betra.

Stundum eru gæði fólgin í því sem er ekki í pakkanum

Það er auðvelt að meta fæðubótarefni út frá því hversu mörg næringarefni eru talin upp á umbúðunum.

En góð samsetning snýst ekki um að haka í sem flest box.

Embrace er einfalt dæmi.

Embrace er Venja dagpakkinn fyrir konur eftir tíðahvörf og inniheldur ekki járn.

Það er ekki galli eða eitthvað sem gleymdist.

Það sýnir einfaldlega að við setjum ekki sjálfkrafa sömu næringarefni í alla dagpakka.

Formúlan á að taka mið af því lífsskeiði sem hún er hönnuð fyrir.

Rétt næringarefni á réttum tíma getur líka þýtt að sleppa einhverju sem á ekki lengur sama erindi í samsetninguna.

Bætiefni eiga að brúa bilið, ekki koma í stað matarins

Við eigum fyrst og fremst að fá næringarefni úr fjölbreyttu mataræði.

Bætiefni breyta því ekki.

En mataræðið nær ekki alltaf alla leið.

Þess vegna horfum við ekki bara á það hversu mikið er ráðlagt að fá af næringarefni.

Við viljum líka vita:

Hvað fá konur raunverulega úr fæðunni?

Þar geta gögn eins og Landsönnun á mataræði Íslendinga hjálpaà.

Þau sýna hvernig mataræði Íslendinga lítur raunverulega út og geta gefið mynd af því handfl mismunandi hópar fá að jafnaði af tilteknum næringarefnum.

Þetta skiptir máli þegar samsetning er ákveðin.

Ef konur fá að jafnaði mikið af ákveðnu næringarefni úr fæðunni er ekki sjálfkrafa ástæða til að setja hátt magn af því í dagpakkann.

Ef gögn sýna aftur á móti bil milli mataræðis og ráðlagðrar inntöku skiptir það líka máli.

Markmiðið er ekki sem mest. Markmiðið er rétt magn.

Skiptir magn næringarefna máli?

Já.

Það er ekki nóg að sjá nafn næringarefnis á umbúðunum.

Það þarf líka að skoða hversu mikið er í ráðlögðum dagskammti.

Tvær vörur geta til dæmis báðar innihaldið magnesíum, fólat eða kólín en magnið getur verið mjög ólíkt.

Þess vegna segir langur innihaldslisti ekki alla söguna.

Næringartaflan segir meira.

Hjá Venju viljum við ekki setja eins hátt magn og hægt er af hverju næringarefni.

Við horfum frekar á hvað á við á lífsskeiðinu, hvað kemur úr mataræðinu og hvernig næringarefnið passar inn í heildarsamsetninguna.

Rétt magn skiptir meira máli en hæsta talan.

Skiptir form næringarefnisins máli?

Það getur gert það.

Mörg vítamín og steinefni geta komið í fleiri en einu formi.

Formið getur meðal annars skipt máli fyrir stöðugleika, frásog, þol og hvernig næringarefnið hentar í samsetningunni.

Það þýðir þó ekki að eitt form sé alltaf „best“.

Það fer eftir næringarefninu, skammtinum, vörunni og því hvaða tilgangi samsetningin á að þjóna.

Fólat er gott dæmi.

Í Venja vörum fyrir konur á barneignaraldri notum við bæði fólínsýru og virkt fólat, 5-MTHF, þar sem það á við í samsetningunni.

Við lítum ekki á annað formið sem „gott“ og hitt sem „slæmt“.

Við horfum á opinberar ráðleggingar, lífsskeiðið og heildarsamsetninguna.

Sama hugsun á við um önnur næringarefni.

Formið er hluti af ákvörðuninni. Ekki gæðastimpill út af fyrir sig.

Hvernig vinna næringarefnin saman?

Góð samsetning er meira en safn af góðum innihaldsefnum.

Heildin þarf líka að ganga upp.

Sum næringarefni geta haft áhrif á upptöku annarra.

Sum þurfa stærri skammta en önnur.

Sum eru olíur en önnur duft.

Sum eiga betur heima í sérhylki.

Þess vegna þarf að horfa á dagpakkann sem eina heild.

Það sem lítur vel út á innihaldslista þarf líka að ganga upp í raunverulegri daglegri notkun.

Af hverju er ekki allt í einni töflu?

Ef markmiðið er einföld rútína virðist ein tafla kannski vera augljósasta lausnin.

En öll næringarefni eru ekki eins.

Sum taka mikið pláss ef þau eiga að vera í því magni sem valið hefur verið fyrir samsetninguna.

Önnur eru olíur.

Sum henta betur í sérhylki.

Og stundum myndi ein tafla einfaldlega kalla á að minnka magn eða breyta samsetningunni til að allt kæmist fyrir.

Þess vegna einföldum við hjá Venju rútínuna, ekki endilega fjölda hylkja.

Dagpakkanum er þegar raðað fyrir þig.

Einn dagpakki. Minna að muna.

Hvað segja heilsufullyrðingar á fæðubótarefnum?

Heilsufullyrðing á umbúðum tengist yfirleitt ákveðnu næringarefni og því hlutverki sem það hefur.

Hún segir ekki sjálfkrafa að öll innihaldsefni vörunnar hafi sömu áhrif.

Segjum til dæmis að vara innihaldi C-vítamín ásamt öðrum innihaldsefnum.

Ef skilyrði fyrir leyfilegri heilsufullyrðingu um C-vítamín eru uppfyllt má nota þá fullyrðingu.

Það þýðir hins vegar ekki sjálfkrafa að sama fullyrðing eigi við um öll önnur innihaldsefni vörunnar.

Þess vegna er gott að spyrja:

Hvaða næringarefni er þessi fullyrðing í raun að vísa til?

Góð upplýsingagjöf á að hjálpa þér að skilja hvað er í vörunni og af hverju.

Hvað með aukaefni í fæðubótarefnum?

Aukaefni eru ekki sjálfkrafa merki um léleg gæði.

Sum þeirra gegna raunverulegu tæknilegu hlutverki í framleiðslu.

Þau geta til dæmis hjálpað til við að koma í veg fyrir kekki eða tryggja jafna dreifingu innihaldsefna.

Betri spurning en:

„Eru einhver aukaefni?“

er því:

„Af hverju eru þau þarna?“

Hjá Venju höldum við þeim í lágmarki og notum þau þegar þau gegna raunverulegu hlutverki í vörunni.

Hvar og hvernig eru Venja fæðubótarefni framleidd?

Góð formúla er bara byrjunin.

Það þarf líka að geta treyst því hvernig varan er framleidd.

Venja dagpakkarnir eru framleiddir í Hollandi í IFS-vottaðri verksmiðju.

IFS-vottun snýst meðal annars um matvælaöryggi, verklag, skjöl, áhættustýringu og rekjanleika.

Hún segir ekki að vara hafi ákveðin heilsuáhrif.

Hún segir okkur eitthvað annað:

Hvernig er staðið að framleiðslunni?

Og það er mikilvægur hluti af gæðum.

Hvað þýðir rekjanleiki í fæðubótarefnum?

Rekjanleiki þýðir að hægt sé að fylgja vörunni aftur í gegnum framleiðsluferlið.

Hver framleiðslulota fær eigið auðkenni.

Ef spurning kemur upp síðar á að vera hægt að finna upplýsingar um:

  • hvaða hráefni fóru í lotuna
  • hvenær hún var framleidd
  • hvaða framleiðslugögn tilheyra henni
  • hvaða prófanir voru gerðar

Rekjanleiki er því ekki bara orð á heimasíðu.

Hann er kerfið á bak við vöruna.

Hvað er óháð lotuprófun?

Óháð lotuprófun þýðir að sýni úr ákveðinni framleiðslulotu er sent til rannsóknarstofu utan framleiðandans til greiningar.

Það bætir við sannprófunarskrefi eftir framleiðslu.

En orðið „óháð prófað“ segir ekki eitt og sér alla söguna.

Það þarf líka að vita:

Fyrir hverju var prófað?

Er hver lota prófuð?

Hver framkvæmir greininguna?

Er prófað hráefni, fullunnin vara eða hvort tveggja?

Prófun fyrir örverum svarar til dæmis annarri spurningu en prófun fyrir þungmálmum.

Þess vegna skiptir nákvæm upplýsingagjöf máli.

Fyrir hverju er hver Venja framleiðslulota prófuð?

Eftir framleiðslu er hver Venja framleiðslulota send í óháða greiningu hjá Eurofins.

Samkvæmt núverandi gæðaupplýsingum Venju er meðal annars prófað fyrir:

  • örverum
  • þungmálmum, þar á meðal arseni, kadmíum, blýi, kvikasilfri og nikkeli
  • myglueiturefnum

Hráefni og lykilþættir í framleiðslu eru einnig yfirfarnir og skráðir samkvæmt gæðakerfi framleiðandans.

Við viljum frekar geta sagt nákvæmlega hvað er gert en nota bara stór orð um gæði.

Hvað segja prófanir ekki?

Prófanir svara ákveðnum spurningum.

Ekki öllum.

Prófun fyrir örverum segir ekki sjálfkrafa til um magn allra vítamína í vörunni.

Prófun fyrir þungmálmum sannar ekki heilsuáhrif.

Og það að vara sé framleidd samkvæmt ströngu gæðakerfi þýðir ekki að hún henti öllum.

Þess vegna er gagnlegt að skilja muninn á:

Gæðum vörunnar

Samsetningu, framleiðslu, rekjanleika og prófunum.

og

Hvort varan á við þig

Lífsskeiði, næringarþörfum, mataræði og einstaklingsbundnum aðstæðum.

Bæði skipta máli.

En þau svara ekki sömu spurningunni.

Fæðubótarefni eru ekki lyf

Fæðubótarefni eru skilgreind sem matvæli samkvæmt evrópsku regluverki.

Þau eiga að bæta við venjulegt mataræði og koma ekki í stað fjölbreytts mataræðis.

Þau eru heldur ekki lyf og eiga ekki að vera kynnt sem vara sem fyrirbyggir, meðhöndlar eða læknar sjúkdóma.

Þetta er mikilvægur grunnur þegar þú berð saman vörur og fullyrðingar um þær.

Hvernig vinnur Venja með gæði?

Fyrir okkur byrja gæði löngu áður en fyrsta hylkið fer í framleiðslu.

Þau byrja á konunni sem dagpakkinn er hannaður fyrir.

Síðan spyrjum við:

Hvaða næringarþarfir eiga við á þessu lífsskeiði?

Hvað fær þessi hópur að jafnaði úr fæðunni?

Hvaða næringarefni eiga raunverulega erindi í samsetninguna?

Í hvaða magni?

Í hvaða formi?

Hvernig passa þau saman?

Og þegar samsetningin er tilbúin þarf líka að geta staðið með framleiðsluna sjálfa.

Rekjanleikann.

Prófanirnar.

Og upplýsingarnar sem við gefum viðskiptavininum.

Rétt næringarefni. Rétt magn. Réttur tími.

Það er okkar leið til að hugsa um gæði.

7 atriði sem gott er að skoða þegar þú velur fæðubótarefni

Þú þarft ekki að vera sérfræðingur í næringarfræði til að spyrja góðra spurninga.

1. Fyrir hverja er varan hönnuð?

Er skýrt hvaða lífsskeiði eða þörf hún er ætluð?

2. Sérðu nákvæmt magn í dagskammtinum?

Ekki bara nöfn innihaldsefnanna.

3. Kemur fram í hvaða formi næringarefnin eru?

Og er hægt að skilja af hverju þau voru valin?

4. Meikar samsetningin sens sem heild?

Fleira og meira er ekki sjálfkrafa betra.

5. Kemur fram hvar varan er framleidd?

Og samkvæmt hvaða gæðakerfi?

6. Er framleiðslan rekjanleg?

Er hægt að rekja framleiðslulotuna aftur í gegnum ferlið?

7. Er sagt nákvæmlega hvað er prófað?

Orðið „prófað“ eitt og sér segir ekki alla söguna.

Góð upplýsingagjöf á að gera þér auðveldara að skilja hvað þú ert að taka og af hverju.

Heimildir