Þegar farið er að huga að barneignum beinist athyglin oft fljótt að tíðahringnum. Hvenær er egglos? Er tíðahringurinn minn reglulegur? Og hvað þýðir það ef hann er það ekki?
Egglos er mikilvægur hluti tíðahringsins þegar kemur að getnaði og tíðahringurinn getur gefið ýmsar vísbendingar um það sem er að gerast í líkamanum.
Tíðahringur er skilgreindur frá fyrsta degi tíðablæðinga þar til næstu blæðingar hefjast. Oft er miðað við 28 daga tíðahring en það er aðeins meðaltal. Algengt er að tíðahringurinn sé á bilinu 21–35 dagar.
Tíðahringurinn þarf því ekki að vera nákvæmlega 28 dagar til að teljast reglulegur. Það sem skiptir meira máli er hvort hann fylgi nokkuð fyrirsjáanlegu mynstri frá einum mánuði til annars.
Egglos verður heldur ekki alltaf á 14. degi tíðahringsins. Tímasetning þess getur verið mismunandi eftir lengd tíðahringsins og frá einum tíðahring til annars. Tíminn frá egglosi fram að næstu blæðingum er oft um 10–16 dagar.
Hvað ef tíðahringurinn er óreglulegur?
Tíðahringurinn getur sveiflast til og einstaka breytingar þurfa ekki að þýða að eitthvað sé að. Ef tíðahringurinn er hins vegar mjög breytilegur frá einum mánuði til annars getur verið erfiðara að átta sig á hvenær egglos verður eða hvort það eigi sér stað reglulega.
Ýmislegt getur haft áhrif á tíðahringinn til dæmis streita, breytingar á þyngd, of mikil hreyfing og veikindi. Hjá konum með fjölblöðruheilkenni (PMOS/PCOS) getur egglos verið óreglulegt eða því getur seinkað sem getur leitt til óreglulegra eða engra blæðinga.
Óreglulegur tíðahringur segir því ekki einn og sér hvað er að gerast eða hver ástæðan er. Ef tíðahringurinn er óreglulegur yfir lengri tíma eða blæðingar hætta alveg þá er gott að ræða við lækni. Það á sérstaklega við ef þú ert farin að huga að barneignum þar sem það getur verið gagnlegt að þekkja tíðahringinn og vita hvenær egglos á sér stað.
Að huga að næringunni áður en þungunarprófið verður jákvætt
Þegar þú byrjar að huga að barneignum er tíðahringurinn aðeins einn hluti af heildarmyndinni. Góður undirbúningur snýst líka um að huga að næringu og lífstíl.
Fyrstu skrefin í þroska fósturs eiga sér stað mjög snemma á meðgöngu, oft áður en þú veist að þú sért barnshafandi. Þess vegna er ráðlagt að huga að ákveðnum næringarefnum áður en meðganga hefst.
Fólat er þekktasta dæmið. Konum sem geta orðið barnshafandi er ráðlagt að taka fólat áður en meðganga hefst og halda því áfram að minnsta kosti fyrstu 12 vikur meðgöngunnar. Einnig er ráðlagt að taka D-vítamín daglega.
Prepare eða Support á meðan þú ert að reyna?
Þegar kemur að því að velja vítamínpakka frá Venju á þessu tímabili er Prepare upphafspunkturinn fyrir flestar konur. Support er hins vegar ætlaður konum sem þurfa markvissari stuðning á meðan þær eru að reyna að verða barnshafandi.
Prepare: fyrir undirbúning og upphaf meðgöngu
Prepare er dagpakki fyrir tímabilið þegar þú ert að undirbúa getnað, reyna að verða barnshafandi og fyrstu 13 vikur meðgöngunnar.
Pakkinn er samsettur með þarfir þessa lífsskeiðs í huga og inniheldur meðal annars fólat á tveimur formum, kólín, járn, joð, DHA og magnesíum.
Ef þungunarprófið verður jákvætt heldurðu áfram með Prepare út 13. viku meðgöngunnar. Frá 14. viku tekur Create við með samsetningu fyrir næsta hluta meðgöngunnar.
Prepare → Create → Nurture → Essential
Support: þegar þörf er á markvissari stuðningi
Support er ætlaður konum sem eru að reyna að verða barnshafandi og eru með fjölblöðruheilkenni (PCOS), óreglulegt egglos eða hafa reynt í 12 mánuði eða lengur.
Í Support er Myo- og D-Chiro Inositol í 40:1 hlutfalli ásamt CoQ10. Inósítól er næringarefni sem líkaminn framleiðir sjálfur og taka meðal annars þátt í boðskiptum frumna. Þau hafa verið mikið rannsökuð í tengslum við PCOS, insúlínnæmi og tíðahring. CoQ10 (kóensím Q10) er efni sem finnst náttúrulega í líkamanum, tekur þátt í orkuframleiðslu frumna og hefur andoxunarvirkni. CoQ10 hefur einnig verið rannsakað í tengslum við gæði eggfrumna.
Support er ætlaður á meðan þú ert að reyna að verða barnshafandi og er ekki meðgöngupakki. Þegar þungunarprófið verður jákvætt skiptirðu yfir í Prepare og heldur áfram með hann út 13. viku. Frá 14. viku tekur Create við.
Support → Prepare → Create → Nurture → Support eða Essential
Hvort á ég að velja Prepare eða Support?
Í stuttu máli:
- Ef þú ert að undirbúa getnað eða reyna að verða barnshafandi og er með reglulegan tíðahring og egglos. → Prepare
- Ef tíðahringurinn eða egglosið er óreglulegt til dæmis í tengslum við PCOS. → Support
- Ef þú hefurreynt að verða barnshafandi í 12 mánuði eða lengur. → Support
- Ef þungunarprófið er orðið jákvætt. → Prepare út 13. viku og Create frá 14. viku.
Að lokum
Tíðahringurinn þarf ekki að passa í fullkomið 28 daga mót. Það sem skiptir meira máli er að þekkja þitt eigið mynstur og taka eftir breytingum, sérstaklega þegar þú ert farin að huga að barneignum.
Ef tíðahringurinn er óreglulegur yfir lengri tíma, blæðingar hætta eða þú hefur áhyggjur af egglosi eða frjósemi er gott að leita ráðgjafar hjá heilbrigðisstarfsfólki. Bætiefni geta stutt við næringuna en koma ekki í stað greiningar, meðferðar eða einstaklingsbundinnar ráðgjafar.
Ertu ekki viss hvaða pakki á við? Taktu prófið og finndu þína Venju.
Skoða Prepare
Skoða Support









