Skip to content
Hvernig vel ég vítamínrútínu?

Hvernig vel ég vítamínrútínu?

Það þarf ekki að vera flókið að velja vítamínrútínu. Byrjaðu á einu: hvar ertu stödd núna?

Næringarþarfir breytast í gegnum lífið. Það getur því skipt máli hvort þú ert að undirbúa getnað, á meðgöngu, með barn á brjósti, á breytingaskeiði eða einfaldlega að leita að góðri daglegri rútínu.

Þú þarft heldur ekki að finna fullkomnu samsetninguna. Gott fyrsta skref er að finna það sem passar við lífsskeiðið þitt og er nógu einfalt til að þú getir haft það sem hluta af deginum.

Ef þú ert ekki viss hvar þú átt að byrja getur Venja prófið hjálpað þér að þrengja valið. Þar svarar þú nokkrum einföldum spurningum og færð leiðsögn að dagpakka sem gæti hentað þér.

Hvað er gott að skoða þegar þú velur?

Lífsskeiðið er góður upphafspunktur. Aldur getur hjálpað, en hann segir ekki einn alla söguna. Það sem skiptir mestu er hvar þú ert stödd núna og hvort þú ert með ákveðna þörf eða ráðleggingu frá heilbrigðisstarfsfólki.

Þegar Venja setur saman dagpakka byrjum við á lífsskeiðinu. Við horfum meðal annars á opinberar ráðleggingar og gögn um mataræði. Markmiðið er ekki að setja sem mest í pakkann, heldur að velja það sem á við fyrir þetta lífsskeið.

Þegar opinberar ráðleggingar eða gögn breytast förum við yfir samsetninguna aftur. NNR 2023 er eitt af þeim viðmiðum sem Venja vinnur með.

Ef þú ert með heilsufarslega spurningu sem þarf einstaklingsbundið mat, til dæmis um lyf, blóðprufu eða einkenni, er rétt að ræða hana við heilbrigðisstarfsfólk.

Af hverju eru mörg hylki í dagpakkanum?

Dagpakki getur verið samsettur úr fleiri en einni tegund af hylki. Hvert þeirra á sinn stað í pakkanum og saman mynda þau dagskammtinn. Þau koma saman í einum pakka, svo þú þurfir ekki að velja og para saman margar vörur sjálf.

Fjöldi hylkja og samsetning eru ólík eftir dagpökkum. Á vörusíðunni sérðu alltaf nákvæmlega hvað er í þeim pakka sem þú ert að skoða, hve mörg hylki fylgja dagskammtinum og hvaða næringarefni eru í honum.

Einföld rútína sem hentar þínum degi

Góð vítamínrútína þarf að passa inn í daginn. Með dagpökkum Venju er dagskammturinn tilbúinn fyrir daginn. Sumum hentar að taka hann með morgunmat, öðrum að hafa hann á sama stað á hverjum degi. Mikilvægt er að taka dagpakkann með mat, ekki á tóman maga. 

Venja dagpakkarnir virka best ef þú tekur þá daglega yfir lengri tíma. Það tekur tíma fyrir líkamann að vinna upp sterkar næringarbirgðir. Venja dagpakkarnir gefa þér tækifæri á að koma inn góðri vítamínrútínu á einfaldan máta. 

Skoðaðu innihaldið þegar þú vilt vita meira

Þú þarft ekki að bera saman margar vörur til að finna Venja dagpakkann þinn. En þegar þú vilt sjá nánar hvað er í honum finnur þú næringartöflu, ráðlagðan dagskammt og innihaldslista á vörusíðunni.

Þar sérðu hvaða næringarefni og form eru í pakkanum og í hvaða magni. Lestu meira um hvernig þú lest næringartöflu fyrir fæðubótarefni.

Markmiðið er ekki að finna eina fullkomna rútínu fyrir allar. Markmiðið er að finna einfaldan upphafspunkt sem hentar þér núna.

Finndu þinn dagpakka