Skip to content
Hvernig les ég næringartöflu fyrir fæðubótarefni?

Hvernig les ég næringartöflu fyrir fæðubótarefni?

Næringartafla getur litið flóknari út en hún er. Byrjaðu á þremur hlutum: dagskammtinum, magni hvers næringarefnis og innihaldslistanum.

Þú þarft ekki að kunna öll heitin eða vita hvað hvert prósentugildi þýðir. Taflan á fyrst og fremst að hjálpa þér að sjá hvað er í vörunni og hversu mikið þú færð í einum dagskammti.

Dagpakki er meira en eitt hylki

Venja dagpakki inniheldur þau hylki sem eiga við um viðkomandi rútínu. Þau koma saman í einum skammti fyrir daginn, svo þú þurfir ekki sjálf að velja og para saman margar vörur.

Í öllum Venja dagpökkum eru fjölvítamín, Vegan omega 3 og magnesíum. Sumir dagpakkar innihalda einnig viðbótarhylki sem eiga við um það lífsskeið eða þá leið sem pakkinn er þróaður fyrir. Fjöldi hylkja og nákvæm samsetning eru ólík eftir pakka, en allt sem á að taka yfir daginn kemur saman í dagpakkann.

Þegar þú sérð 1x, 2x eða 3x við hlið innihaldsefnis segir það þér hversu mörg hylki af þeirri tegund eru í dagskammtinum. Þetta eru ekki auka valkostir sem þú þarft að ákveða um sjálf. Þau eru hluti af samsetningu pakkans.

Byrjaðu á dagskammtinum

Fyrsta spurningin er einföld: hvað telst einn dagskammtur? Á næringartöflu Venju sérðu dagskammtinn fyrir hvern hluta pakkans. Í einum pakka getur fjölvítamínið til dæmis verið eitt hylki, Vegan omega 3 tvö hylki og magnesíum eitt hylki. Saman mynda þau einn dagpakka. Einn dagpakki er einn dagsskammtur.

Tölurnar í hverri næringartöflu eiga við um ráðlagðan dagskammt þess hluta. Þú þarft ekki að leggja saman hylki til að velja pakkann. Ef þú vilt bera saman vörur skaltu alltaf skoða heilan dagpakka við heilan dagpakka.

Magnið sýnir hvað er í pakkanum

Við hvert næringarefni sérðu yfirleitt magn, til dæmis í milligrömmum eða míkrógrömmum. Þetta er nákvæmlega magnið sem er í ráðlögðum dagskammti viðkomandi hluta pakkans.

Ef þú vilt skoða tvær vörur er gott að taka eftir einingunum. En fyrir Venja snýst taflan fyrst og fremst um að þú getir séð nákvæmlega hvað er í þínum pakka, ekki að þú þurfir að finna réttu töluna sjálf.

Form næringarefnanna

Stundum stendur nánara heiti í sviga við næringarefnið. Það segir einfaldlega í hvaða formi næringarefnið er í vörunni.

Þú þarft ekki að leggja öll þessi heiti á minnið. Þau eru þarna svo þú getir séð nákvæmlega hvað er í vörunni ef þú vilt kafa dýpra.

Hér eru nokkur dæmi um hvernig lesa má þessi heiti:

  • Fólat er heiti á B-vítamíni sem getur birst í fleiri en einu formi. Fólínsýra er eitt slíkt form. 5-MTHF er annað fólat-form. Þegar Quatrefolic® stendur í töflunni er þar verið að nefna nákvæmlega vörumerkta hráefnið, 5-MTHF glúkósamínsalt.
  • MK-7 er stytting fyrir menaquinone-7, eitt form K2-vítamíns. Á sumum Venja næringartöflum sést einnig vörumerkið K2VITAL®, sem segir hvaða hráefni er notað.
  • Ferrochel® er vörumerkt járnbisglýsínat. Nafnið segir nákvæmlega hvaða járnform og hráefni er notað.

Vörumerkt hráefni eru ekki sjálfkrafa loforð um að eitt form henti öllum betur en annað. Þau hjálpa þér að sjá nákvæmlega hvaða form er notað.

Prósentan setur magnið í samhengi

Prósentan í næringartöflum Venju er miðuð við Norrænar næringarráðleggingar 2023, NNR 2023. Viðmiðið er valið út frá þeim hópi eða lífsskeiði sem dagpakkinn er þróaður fyrir.

Á töflum fyrir daglega rútínu getur prósentan til dæmis miðast við konur 18–50 ára. Á Prepare og Create er hún miðuð við viðeigandi þriðjung meðgöngu, á Nurture við konur með barn á brjósti og á Embrace við konur 51–70 ára.

Þetta er viðmið, ekki persónuleg ráðlegging. Þú þarft því ekki að reyna að ná ákveðinni prósentu með hverju næringarefni fyrir sig.

Fyrir sum innihaldsefni birtist ** í stað prósentu. Það merkir að ekki er skilgreint sambærilegt næringarviðmið fyrir það innihaldsefni. Það segir ekki að innihaldsefnið sé minna mikilvægt.

Þegar opinberar ráðleggingar og gögn breytast fer Venja yfir samsetningu dagpakkanna á ný.

Hvað er svona merkilegt við NNR 2023?

Ekki að allt hafi breyst. Frekar að allur grunnurinn var tekinn upp aftur með nýrri þekkingu. Þetta eru jafnframt þær umfangsmestu breytingar sem orðið hafa á samræmdum næringarráðleggingum frá upphafi.

NNR 2023 var unnið yfir fimm ára tímabil með þátttöku hundruða vísindamanna og sérfræðinga. Farið var aftur yfir rannsóknir fyrir næringarefni og viðmiðunargildi endurreiknuð með nýrri aðferðafræði. Fyrir sum næringarefni breyttust ráðleggingarnar, önnur fengu viðmiðunargildi sem ekki voru til í NNR 2012 og fyrir flest næringarefni voru breytingarnar þó tiltölulega litlar.  

Sem dæmi fékk kólín í fyrsta sinn skilgreinda bráðabirgðameðalþörf í NNR 2023. Sama á við um fleiri næringarefni sem höfðu ekki slíkt viðmið í NNR 2012. Þau eru hluti af þeim gögnum sem Venja styðst við þegar dagpakkarnir eru þróaðir og yfirfarnir.

Lestu meira um NNR 2023 hjá Norrænu ráðherranefndinni.

Lestu innihaldslistann líka

Næringartaflan og innihaldslistinn svara ekki alveg sömu spurningunni.

  • Næringartaflan sýnir hvaða næringarefni eru í hverjum hluta pakkans og í hvaða magni.
  • Innihaldslistinn sýnir nánar innihaldsefnin sem notuð eru til að búa hylkin til, þar á meðal hylkið sjálft og önnur hjálparefni þegar þau eiga við.

Ef þú ert með ofnæmi, óþol, fylgir ákveðnu mataræði eða vilt forðast tiltekið innihaldsefni er innihaldslistinn sérstaklega mikilvægur. Þar er gott að gefa sér smá stund til að lesa nánar eða hafa samband við Venju ef þig vantar hjálp við að finna upplýsingarnar.

Ef þú tekur önnur fæðubótarefni samhliða Venja

Venja dagpakki er hugsaður sem ein dagleg rútína. Ef þú vilt bæta annarri vöru við, til dæmis eftir ráðleggingu frá heilbrigðisstarfsfólki, er gott að skoða hvort sama næringarefnið komi fyrir á fleiri en einum stað.

Ef þú ert óviss um samsetningu, notar lyf eða hefur fengið sértækar ráðleggingar frá heilbrigðisstarfsfólki er rétt að ræða heildarmyndina við heilbrigðisstarfsfólk.

Hvar finn ég þessar upplýsingar hjá Venju?

Á vörusíðum Venju finnur þú upplýsingar um hvað er í dagpakkanum, ráðlagðan dagskammt fyrir hvern hluta hans, næringartöflur og innihaldslista. Þú þarft ekki að bera saman alla pakkana. Byrjaðu á lífsskeiðinu þínu eða taktu prófið og skoðaðu síðan næringartöfluna fyrir pakkann sem hentar þér.

Skoðaðu Venja dagpakkana