





Iron Lady
Couldn't load pickup availability
Hönnuð fyrir konur sem glíma við járnskort. Járnið veitir góða upptöku og fer vel í maga
Iron Lady er hönnuð fyrir konur sem eru með aukna járnþörf, hvort sem um er að ræða lág járngildi, miklar tíðablæðingar, íþróttaiðkun, meðgöngu eða hafa fengið tilvísun frá heilbrigðisstarfsfólki.
Iron Lady inniheldur 15 mg af járni á formi sem veitir góða upptöku og fer vel í maga (Ferrochel®). Inniheldur einnig C-vítamín sem eykur upptöku járns.
- Inniheldur Ferrochel® (ferrous bisglycinate chelate), járnform sem veitir góða upptöku og fer vel í maga
- C-vítamín í hverju hylki til að stuðla að frásogi
- Hentar samhliða öllum Venja dagpökkum
Vörulýsing
Iron Lady inniheldur 15 mg af járni á formi sem veitir góða upptöku og fer vel í maga (Ferrochel®). Inniheldur einnig C-vítamín sem eykur upptöku járns.
Járn gegnir mörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum, meðal annars:
- stuðlar að því að draga úr þreytu
- stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins
- stuðlar að eðlilegum flutningi súrefnis í líkamanum
- stuðlar að eðlilegri myndun rauðra blóðkorna og hemóglóbíns
- stuðlar að eðlilegri vitsmunastarfsemi
Af hverju þetta form af járni?
Mörg algeng járnbætiefni nota formið ferrous sulfate, sem er ódýrt og þess vegna útbreiddasta formið en það er einnig það form sem oftast veldur magaóþægindum við inntöku. Iron Lady inniheldur járn bisglycinate (Ferrochel®), form þar sem járn er bundið við amínósýruna glycine. Þetta form var valið með tvennt í huga: það er betra fyrir meltingu maga og nýtist betur í líkamanum.
Í klínískri rannsókn á dönskum konum á meðgöngu skiluðu 25 mg af járn bisglycinate svipuðum árangri og 50 mg af hefðbundnu járnformi - helmingi minni skammtur dugði til. Á sama tíma fundu þær konur sem tóku járn bisglycinate fyrir minni magaóþægindum.
Iron Lady inniheldur einnig C-vítamín, sem eykur upptöku járns enn frekar.
Hvernig passar Iron Lady við dagpakkann minn?
Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um pakkana okkar. Járn skammturinn er mismunandi eftir lífsskeiðum. Iron Lady bætir 15 mg ofan á það sem dagpakkinn gefur.
Allar samsetningar eru vel innan efri marka daglegra skammtaviðmiða með inntöku á 1 hylki á dag, það er ekki mælt með því að taka meira en 60 mg á dag. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt 3 eða fleiri hylki á dag samhliða Create, getur samanlögð inntaka farið yfir þolanleg efri mörk. Slíkur skammtur á að vera ákveðinn í samráði við lækni eða ljósmóður þar sem járn getur hlaðist upp í líkamanum.
| Your daily pack | Iron in pack | Iron Lady | Total (UL 60 mg) |
|---|---|---|---|
| Essential | 6.1 mg | 15.0 mg | 21.1 mg |
| Support | 6.1 mg | 15.0 mg | 21.1 mg |
| Prepare | 15.0 mg | 15.0 mg | 30.0 mg |
| Create | 17.0 mg | 15.0 mg | 32.0 mg |
| Nurture | 0.0 mg | 15.0 mg | 15.0 mg |
| Erupt | 6.0 mg | 15.0 mg | 21.0 mg |
| Rise | 6.1 mg | 15.0 mg | 21.1 mg |
| Embrace | 0.0 mg | 15.0 mg | 15.0 mg |
Fyrir hvern er Iron Lady?
Iron Lady er hugsuð til notkunar samhliða dagpökkum Venja fyrir konur með aukna járnþörf, meðal annars:
- konur með miklar tíðablæðingar
- íþróttakonur
- konur í brjóstagjöf eftir að blæðingar hefjast að nýju (Nurture inniheldur ekki járn)
- konur sem hafa fengið ráðleggingu frá heilbrigðisstarfsfólki um aukinn járnskammt
- konur sem á meðgöngu sem hafa fengið ráðleggingu frá heilbrigðisstarfsfólki um aukinn járnskammt
Ef þú ert ekki viss hvort þú þurfir auka járn, ráðfærðu þig við heilbrigðisstarfsfólk - blóðprufa segir til um járnstöðu þína á einfaldan hátt.
Notkunarleiðbeiningar
Eitt hylki á dag eða eftir ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks. Við mælum með að taka Iron Lady fastandi að morgni með fullu glasi af vatni eða með mat ef það fer betur í magann. Fastandi gefur líkamanum best tækifæri til að taka járnið upp; best er að bíða með að borða og drekka kaffi eða te í 30–60 mínútur eftir inntöku.
Forðist að taka járn samhliða te, kaffi, gosdrykkjum eða mjólkurvörum þar sem það getur dregið úr járnuptöku. Forðist einnig að taka á sama tíma dags og bætiefni sem innihalda kalk (t.d. Create, Nurture, Embrace).

| Í ráðlögðum dagskammti | Magn | %RDS konur 18–50 ára* |
|---|---|---|
| Járn (járnbisglycinate chelate (Ferrochel®)) | 15 mg | 100% |
| C-vítamín (askorbínsýra) | 80 mg | 84% |
Virk innihaldsefni: Askorbínsýra, járnbisglycinate chelate (Ferrochel®).
Önnur innihaldsefni: Hrísmjöl (burðarefni), HPMC (hýdroxýprópýlmetýlsellulósi) vegan hylki, miðlungskeðju þríglýseríðduft úr kókos (kekkjavarnarefni), Nu-FLOW® náttúrulegt hrísgrjónaþykkni (kekkjavarnarefni).
Ferrochel® er skráð vörumerki Balchem Corporation.
Notkun og skammtar
Taktu eitt hylki á dag, eða samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks. Til að stuðla að sem bestri upptöku mælum við með að taka Iron Lady fastandi að morgni með fullu glasi af vatni, eða með mat ef það fer betur í magann. Ef þú tekur hylkið fastandi er best að bíða í 30–60 mínútur með kaffi eða te, þar sem hvort tveggja getur dregið úr upptöku járns.
Forðastu að taka Iron Lady á sama tíma og te, kaffi, gosdrykki eða mjólkurvörur. Forðastu einnig að taka það á sama tíma dags og bætiefni sem innihalda kalk (t.d. Nurture og Embrace), þar sem kalk getur einnig dregið úr upptöku járns.
Eitt hylki (15 mg) gefur 100% af ráðlögðum dagskammti fyrir konur 18–50 ára samkvæmt NNR 2023 og hentar flestum konum. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt hærri skammt út frá blóðprufu má taka allt að 4 hylki á dag. Skammtur umfram eitt hylki á dag ætti þó alltaf að vera ákveðinn af lækni eða ljósmóður.
Hversu lengi þú tekur Iron Lady fer eftir ástæðunni. Ef þörfin er viðvarandi, til dæmis vegna mikilla tíðablæðinga eða mikillar hreyfingar, getur Iron Lady verið hluti af daglegri rútínu svo lengi sem þörfin er til staðar. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt Iron Lady eftir blóðprufu skaltu fylgja þeirra ráðleggingum. Járnstaða er almennt endurmetin með blóðprufu eftir 3–6 mánuði.
Hvernig Iron Lady passar með dagpakkanum þínum
Iron Lady er hönnuð til að taka samhliða Venja dagpakkanum þínum og bætir við auknu járni ofan á það sem dagpakkinn inniheldur.
| Dagpakkinn þinn | Járn í dagpakka | Samtals járn með Iron Lady |
|---|---|---|
| Essential | 6,1 mg | 21,1 mg |
| Support | 6,1 mg | 21,1 mg |
| Prepare | 15,0 mg | 30,0 mg |
| Create | 17,0 mg | 32,0 mg |
| Nurture & Embrace | 0,0 mg | 15,0 mg |
| Rise & Erupt | 6,0 mg | 21,0 mg |
Með einu hylki á dag eru allar samsetningar vel innan efri marka daglegrar inntöku. Ekki er mælt með að heildarinntaka járns fari yfir 60 mg á dag. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt 3 eða fleiri hylki samhliða Create getur samanlögð inntaka farið yfir þolanleg efri mörk. Slíkur skammtur ætti aðeins að vera tekinn samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks, þar sem járn getur safnast upp í líkamanum.
Neytið ekki meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Neysla fæðubótarefna kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.
Geymist á þurrum stað, varið gegn hita og ljósi. Geymið þar sem börn ná ekki til.
Eins og með önnur fæðubótarefni skal leita ráðlegginga læknis fyrir notkun ef tekin eru blóðþynnandi lyf eða önnur lyf. Barnshafandi konur og konur með barn á brjósti skulu ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk fyrir notkun.
-
Ferrous bisglycinate 25 mg iron is as effective as ferrous sulfate 50 mg iron in the prophylaxis of iron deficiency and anemia during pregnancy in a randomized trial
Journal of Perinatal Medicine, 2014. DOI: 10.1515/jpm-2013-0153. -
The effects of oral ferrous bisglycinate supplementation on hemoglobin and ferritin concentrations in adults and children: a systematic review and meta-analysis of randomized controlled trials
Nutrition Reviews, 2023. DOI: 10.1093/nutrit/nuac106.
Fer betur í maga
Iron Lady er hönnuð fyrir konur sem eru með aukna járnþörf, hvort sem um er að ræða lág járngildi, miklar tíðablæðingar, íþróttaiðkun, meðgöngu eða hafa fengið tilvísun frá heilbrigðisstarfsfólki. Iron Lady inniheldur 15 mg af járni á formi sem veitir góða upptöku og fer vel í maga (Ferrochel®). Inniheldur einnig C-vítamín sem eykur upptöku járns.
Tölum um járnskort
Járnskortur er algengur hjá konum
Tíðahringur og barneignir: hvað er gott að vita?
Þegar farið er að huga að barneignum beinist athyglin oft fljótt að tíðahringnum. Hvenær er egglos? Er tíðahringurinn minn reglulegur?...
Hvernig breytist það sem líkaminn þarf í gegnum barneignarferlið?
Fyrir þær sem eru farnar að huga að barneignum getur þetta verið ótrúlega spennandi tími. Ferlið sem konur ganga í...
Af hverju fara sumar járntöflur verr í maga en aðrar?
Margar konur hætta á járni vegna magaóþæginda. Hér útskýrum við af hverju járnform skiptir máli, hvernig upptaka virkar og hvort...
Frequently asked questions
Iron Lady er hugsuð til notkunar samhliða dagpökkum Venja fyrir konur með aukna járnþörf, meðal annars:
- konur með miklar tíðablæðingar
- íþróttakonur
- konur í brjóstagjöf eftir að blæðingar hefjast að nýju (Nurture inniheldur ekki járn)
- konur sem hafa fengið ráðleggingu frá heilbrigðisstarfsfólki um aukinn járnskammt
- konur sem á meðgöngu sem hafa fengið ráðleggingu frá heilbrigðisstarfsfólki um aukinn járnskammt
Ef þú ert ekki viss hvort þú þurfir auka járn, ráðfærðu þig við heilbrigðisstarfsfólk - blóðprufa segir til um járnstöðu þína á einfaldan hátt.
Eitt hylki á dag eða eftir ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks. Við mælum með að taka Iron Lady fastandi að morgni með fullu glasi af vatni eða með mat ef það fer betur í magann. Fastandi gefur líkamanum best tækifæri til að taka járnið upp; best er að bíða með að borða og drekka kaffi eða te í 30–60 mínútur eftir inntöku.
Forðist að taka járn samhliða te, kaffi, gosdrykkjum eða mjólkurvörum þar sem það getur dregið úr járnuptöku. Forðist einnig að taka á sama tíma dags og bætiefni sem innihalda kalk (t.d. Nurture og Embrace).
Dagpakkarnir okkar eru hannaðir til að mæta þörfum almennrar konu á viðkomandi lífsskeiði. Fyrir flestar konur dugar dagsskammturinn.
En sumar konur þurfa meira járn en almennt gildir til dæmis ef þú ert með miklar tíðablæðingar, stundar mikla þolþjálfun eða ef heilbrigðisstarfsmaður hefur ráðlagt þér aukna járninntöku eftir blóðprufu almennt eða á meðgöngu. Þá er Iron Lady hugsuð sem viðbót við dagpakkann þinn.
Já, það getur verið góður valkostur sérstaklega ef daglegur skammtur fer illa í maga.
Klínískar rannsóknir benda til þess að daglega og annan hvern dag séu álíka áhrifaríkar á járnbúskap, en annan hvern dag veldur oft færri magaóþægindum. Ástæðan er hormónið hepcidin þegar þú tekur járn hækkar það í blóði í allt að 24 klukkustundir og dregur úr upptöku á næsta skammti. Pása í einn dag gefur líkamanum tíma til að jafna sig.
Mörg algeng járnbætiefni nota ferrous sulfate sem er ódýrasta og útbreiddasta formið en líka það sem oftast veldur magaóþægindum eins og hægðatregðu, ógleði eða uppþembu.
Iron Lady inniheldur járnbisglycinate (Ferrochel®), form þar sem járn er bundið við amínósýruna glycine. Glycine-bindingin hjálpar járninu að komast óáreitt í gegnum meltingarveginn og nýtast líkamanum, án þess að erta magann á sama hátt og hefðbundnara járn.
Eitt hylki á dag er góður skammtur fyrir flestar konur sem er 15 mg, sem nemur ráðlögðum dagskammti fyrir konur 18–50 ára. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt þér hærri skammt eftir blóðprufu má taka allt að 4 hylki á dag. Slíkur skammtur á alltaf að vera ákveðinn af lækni eða ljósmóður.
Það fer eftir ástæðunni. Ef þú tekur Iron Lady til að mæta daglegri járnþörf, til dæmis vegna mikilla tíðablæðinga eða íþróttaiðkunar, getur hún verið hluti af daglegri rútínu svo lengi sem þörfin er til staðar. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt þér hana eftir blóðprufu, fylgdu þeirra ráðleggingum. Yfirleitt er gott að endurmeta járnstöðuna með annarri blóðprufu eftir 3–6 mánuði.
Við sendum alltaf áminningu nokkrum dögum áður en næsti pakki fer í vinnslu. En ef eitthvað kemur upp, þá er auðvitað hægt að skila eða skipta. Pakkinn þarf að vera í upprunalegu ástandi og skilafrestur er 14 dagar frá afhendingu.
Svona er skilaferlið:
- Farðu inn á Dropp vöruskil
- Stofnaðu vöruskil og prentaðu út strikamerkið sem fylgir
- Settu það á pakkann og skilaðu á næsta afhendingarstað Dropp
- Þegar pakkinn er kominn til okkar, endurgreiðum við þér vöruna
Járnskortur hjá konum
174 konur svöruðu okkur um járnskort, niðurstöðurnar komu okkur ekki á óvart
Við spurðum konur um reynslu þeirra af járnskorti, járngildum og járnbætiefnum. Svörin sýna að margar glíma við sömu áskoranir. Járnskortur er eitthvað sem margar konur þekkja Þegar við fórum að...









