Skip to content
Er ég komin á breytingaskeið? Fyrstu einkenni og það sem þú þarft að vita

Er ég komin á breytingaskeið? Fyrstu einkenni og það sem þú þarft að vita

Þú ert farin að sofa verr. Vaknar kannski um miðja nótt, alveg glaðvakandi. Blæðingarnar eru ekki eins reglulegar og áður. Þú finnur fyrir meiri pirringi, átt stundum erfitt með að einbeita þér og ert ekki alveg eins og þú átt að þér að vera.

Þú hefur kannski velt því fyrir þér hvort þetta geti verið breytingaskeiðið.

Hjá mörgum konum byrja breytingarnar einmitt svona. Ekki endilega með hitakófum eða því að blæðingar hætti, heldur með breytingum sem auðvelt er að tengja við streitu, álag eða svefnleysi.

Þú gætir verið komin á breytingaskeið ef tíðahringurinn, svefninn eða líðanin hefur breyst, sérstaklega eftir 45 ára aldur. Matið byggist oftast á aldri, einkennum og breytingum á blæðingum. Ein hormónablóðprufa getur yfirleitt ekki staðfest eða útilokað breytingaskeiðið.

Breytingaskeiðið er eðlilegur hluti af lífi kvenna, en upplifunin er mjög einstaklingsbundin. Sumar konur finna lítið fyrir því á meðan aðrar upplifa einkenni sem hafa áhrif á svefn, líðan og daglegt líf.

Hér förum við yfir fyrstu einkennin, hvað gerist í líkamanum, hvernig breytingaskeiðið er metið og hvenær er gott að leita ráða.

Hvað er breytingaskeiðið og hvenær byrjar það?

Breytingaskeiðið er tímabilið þegar starfsemi eggjastokkanna tekur að breytast og líkaminn færist smám saman nær tíðahvörfum.

Framleiðsla estrógens og prógesteróns verður óreglulegri og hormónagildin geta sveiflast. Þessar breytingar geta meðal annars farið saman við breytingar á tíðahring, svefni, líðan og hitastjórnun líkamans.

Samkvæmt Heilsuveru hefst breytingaskeiðið hjá flestum konum á aldrinum 45 til 50 ára og getur staðið yfir í nokkur ár. Sumar konur finna þó fyrir breytingum fyrr.

Breytingaskeið, tíðahvörf og tíminn eftir tíðahvörf

Þessi hugtök eru oft notuð yfir sama tímabilið, en þau merkja ekki alveg það sama.

Breytingaskeiðið: Tímabilið fyrir tíðahvörf þegar hormónastarfsemin tekur að breytast. Blæðingar geta orðið óreglulegar og ýmis einkenni komið fram.

Tíðahvörf: Þegar 12 mánuðir hafa liðið frá síðustu náttúrulegu tíðablæðingum. Tíðahvörf eru því staðfest eftir á.

Eftir tíðahvörf: Tímabilið sem tekur við eftir tíðahvörf. Hormónagildi eru almennt lægri en áður, en sum einkenni geta haldið áfram.

Þessi skilgreining á tíðahvörfum á ekki alltaf við ef blæðingar hafa hætt vegna hormónagetnaðarvarna, skurðaðgerðar eða annarra orsaka.

Þú getur enn orðið þunguð á breytingaskeiðinu þótt blæðingar séu orðnar óreglulegar. Ef þú vilt ekki verða þunguð er því mikilvægt að nota viðeigandi getnaðarvörn og fá ráðgjöf um hvenær óhætt er að hætta henni.

Hver eru fyrstu einkenni breytingaskeiðsins?

Fyrstu einkennin geta verið ólík milli kvenna. Hjá sumum breytist tíðahringurinn fyrst. Aðrar taka frekar eftir svefntruflunum, hitakófum eða breytingum á líðan.

Algeng einkenni

  • Breytingar á blæðingum. Tíðahringurinn getur styst eða lengst. Blæðingar geta orðið meiri, minni eða óreglulegri.
  • Hitakóf og nætursviti. Skyndileg hitatilfinning, stundum með roða og svita. Einkennin geta truflað svefn.
  • Svefntruflanir. Erfiðara getur verið að sofna, svefninn verður grynnri eða þú vaknar oftar yfir nóttina.

Einkenni sem færri tengja við breytingaskeiðið

Hormónabreytingarnar geta einnig farið saman við einkenni sem þú myndir ekki endilega tengja við tíðahvörf:

  • Einbeitingarerfiðleikar og gleymska, oft kallað heilaþoka
  • Meiri kvíði, pirringur eða skapsveiflur
  • Liðverkir og vöðvaóþægindi
  • Höfuðverkur eða breytingar á mígreni
  • Hjartsláttarónot
  • Þurrkur í húð og slímhúðum
  • Breytingar á kynhvöt
  • Eymsli í brjóstum

Það er ekki þar með sagt að þú munir finna fyrir öllum þessum einkennum. Sumar konur upplifa aðeins eitt eða tvö, aðrar fleiri.

Þú þarft ekki að vera með hitakóf til að vera komin á breytingaskeiðið.

Eru þessi einkenni alltaf tengd breytingaskeiðinu?

Nei, ekki endilega.

Þreyta, kvíði, hárlos, hjartsláttarónot og svefnvandamál geta einnig tengst öðrum þáttum, til dæmis járnskorti, breytingum á skjaldkirtilsstarfsemi, streitu, lyfjum eða öðrum heilsufarsvandamálum.

Þess vegna er mikilvægt að gera ekki sjálfkrafa ráð fyrir að öll ný einkenni stafi af hormónabreytingum.

Ef einkennin eru ný, þrálát eða hafa áhrif á daglegt líf er gott að ræða þau við heilbrigðisstarfsfólk.

Af hverju breytast blæðingar, svefn og líðan?

Á breytingaskeiðinu minnkar starfsemi eggjastokkanna smám saman, en hormónin lækka ekki öll jafnt og þétt.

Estrógen og prógesterón geta sveiflast töluvert. Suma mánuði verður egglos eins og áður, aðra mánuði ekki. Þetta getur farið saman við breytingar á blæðingum, svefni, skapi og hitastjórnun líkamans.

Af hverju geta blæðingarnar breyst?

Þegar egglos verður óreglulegra breytist einnig hormónamynstrið sem stýrir tíðahringnum. Blæðingar geta því orðið meiri, minni, lengri eða óreglulegri.

En það er ekki rétt að gera ráð fyrir að allar breytingar á blæðingum séu vegna breytingaskeiðsins. Vöðvahnútar, legslímuflakk, kirtilvöxtur í legvegg og fleiri þættir geta einnig valdið miklum blæðingum eða verkjum.

Ef blæðingar verða skyndilega mjög miklar, koma á milli tíða eða eftir samfarir, eða verkir eru nýir eða versnandi, er mikilvægt að láta skoða það.

Lestu einnig um tíðahringinn, næringu og það sem breytingar á blæðingum geta sagt okkur.

Af hverju getur fyrirtíðaspennan orðið meira áberandi?

Hormón sem tengjast tíðahringnum hafa einnig áhrif á kerfi sem tengjast skapi og líðan. Á breytingaskeiðinu geta sveiflurnar orðið ófyrirsjáanlegri en áður.

Hjá sumum konum getur það farið saman við meiri pirring, kvíða, viðkvæmni eða skapsveiflur, sérstaklega á ákveðnum tímum tíðahringsins.

Það er þó ekki alltaf magn hormónanna sjálfra sem skiptir mestu máli. Sumar konur virðast vera næmari fyrir breytingum á hormónagildum en aðrar.

Af hverju vakna ég allt í einu á nóttunni?

Svefntruflanir eru algengar á breytingaskeiðinu og geta átt sér fleiri en eina skýringu.

Hormónabreytingar geta haft áhrif á svefn og hitastjórnun líkamans. Nætursviti getur vakið þig, en kvíði, streita og breytingar á líðan geta einnig gert erfiðara að sofna eða sofa heila nótt.

Þetta getur orðið að vítahring. Þú sefur verr, ert þreyttari daginn eftir og átt erfiðara með að takast á við álag sem áður truflaði þig lítið.

Hvað veldur hitakófum?

Estrógen hefur meðal annars áhrif á þann hluta heilans sem stjórnar líkamshitanum. Þegar hormónastarfsemin breytist verður hitastjórnun líkamans hjá sumum konum viðkvæmari.

Þá getur líkaminn brugðist við litlum hitabreytingum eins og hann sé orðinn of heitur. Æðarnar víkka, húðin roðnar og svitamyndun eykst til að kæla líkamann. Þetta upplifum við sem hitakóf.

Ekki allar konur fá hitakóf. Hjá þeim sem fá þau er mjög mismunandi hversu oft þau koma og hversu mikil áhrif þau hafa.

Hvernig veit ég hvort ég sé komin á breytingaskeiðið?

Það er ekki alltaf hægt að benda á eina ákveðna breytingu og segja að nú sé breytingaskeiðið hafið.

Hjá konum yfir 45 ára byggist matið yfirleitt á aldri, einkennum og breytingum á tíðahringnum. Hormónamælingar eru oft ekki nauðsynlegar þegar einkennin og aldurinn gefa skýra mynd.

Þú gætir til dæmis tekið eftir því að blæðingarnar koma ekki lengur jafn reglulega, að svefninn hefur breyst og að þú finnur fyrir einkennum sem þú þekktir ekki áður.

Þessar upplýsingar geta saman gefið vísbendingar um að breytingaskeiðið sé hafið. Ef þú ert óviss er gott að fá ráðgjöf hjá heilsugæslunni.

Getur blóðprufa sýnt hvort ég sé komin á breytingaskeiðið?

Ekki alltaf. Ein hormónablóðprufa getur yfirleitt ekki staðfest eða útilokað breytingaskeiðið hjá konum yfir 45 ára.

Á breytingaskeiðinu geta hormónagildi sveiflast mikið. Blóðprufa sýnir hormónastöðuna á þeim tíma sem sýnið er tekið, en ekki endilega hvernig hormónastarfsemin hefur verið undanfarnar vikur eða mánuði.

Eðlileg niðurstaða úr einni blóðprufu útilokar því ekki breytingaskeiðið.

Hvenær getur blóðprufa verið gagnleg?

Í ákveðnum aðstæðum getur heilbrigðisstarfsfólk metið hvort ástæða sé til að mæla FSH. Það getur til dæmis átt við hjá konum á aldrinum 40 til 45 ára með einkenni og breytingar á tíðahring, eða hjá konum undir fertugu þegar grunur er um skerta starfsemi eggjastokka eða ótímabær tíðahvörf.

Aðrar blóðprufur geta verið gagnlegar til að kanna hvort eitthvað annað skýri einkennin. Eftir einkennum og heilsufarssögu getur til dæmis verið ástæða til að skoða járnbirgðir eða skjaldkirtilsstarfsemi.

Þær mælingar greina ekki breytingaskeiðið sjálft en geta hjálpað til við að finna aðrar skýringar.

Hvenær ætti ég að leita til læknis?

Þú þarft ekki að bíða þar til einkennin verða mjög slæm.

Ef svefntruflanir, vanlíðan, hitakóf eða aðrar breytingar eru farnar að hafa áhrif á líðan þína og daglegt líf er full ástæða til að leita ráða.

Það er sérstaklega mikilvægt að fá læknisfræðilegt mat ef:

  • Þú ert undir 45 ára og hefur einkenni sem gætu bent til snemmbærra tíðahvarfa.
  • Blæðingar verða mjög miklar eða vara óvenju lengi.
  • Þú færð blæðingar á milli tíða eða eftir samfarir.
  • Þú finnur fyrir nýjum eða áberandi hjartsláttarónotum.
  • Kvíði eða depurð hefur veruleg áhrif á daglegt líf.
  • Þú ert stöðugt þreytt, sérstaklega ef þú ert einnig með miklar blæðingar.

Ef þú færð blæðingu eftir að 12 mánuðir hafa liðið frá síðustu náttúrulegu tíðablæðingum á alltaf að láta meta hana. Það á líka við um litlar blettablæðingar.

Ef hjartsláttarónotum fylgja brjóstverkur, yfirlið eða miklir öndunarerfiðleikar þarf tafarlaust mat. Í neyð skal hringja í 112.

Hvernig undirbý ég mig fyrir samtal við lækni?

Það getur hjálpað að fylgjast með breytingunum áður en þú ferð í viðtal. Þú þarft ekkert flókið kerfi. Það er nóg að skrifa nokkrar línur í símann.

Gott er að skrá:

  • Hvenær blæðingar byrja og enda og hvort þær hafi breyst
  • Hvaða einkenni þú finnur fyrir og hversu oft
  • Hvort svefninn hefur breyst
  • Hvaða áhrif einkennin hafa á líðan og daglegt líf
  • Hvaða lyf og bætiefni þú tekur

Ef þú átt erfitt með að útskýra hvernig þér hefur liðið getur verið gott að velja þau tvö eða þrjú einkenni sem trufla þig mest.

Þú getur til dæmis spurt:

„Gætu þessi einkenni tengst breytingaskeiðinu eða ættum við að skoða aðrar skýringar?“

Eða:

„Hvaða meðferðarúrræði gætu hentað mér og hverjir eru kostir þeirra og gallar?“

Það er ekki nauðsynlegt að mæta með öll svörin. Tilgangurinn er einmitt að fá hjálp við að átta sig á stöðunni.

Hvað get ég sjálf gert á breytingaskeiðinu?

Breytingaskeiðið er ekki sjúkdómur, en einkenni þess geta haft mikil áhrif á líðan.

Regluleg hreyfing, þar á meðal styrktarþjálfun og þungaberandi hreyfing, skiptir máli fyrir vöðva og bein. Fjölbreytt mataræði, næg næring, hvíld og góð svefnrútína styðja almenna heilsu á þessu lífsskeiði.

Lestu meira um beinheilsu kvenna, kalk, D-vítamín og beinþynningu.

Ef einkennin hafa veruleg áhrif á líðan þína eru einnig til meðferðarúrræði. Hormónameðferð er áhrifaríkasta meðferðin við hita- og svitakófum hjá þeim konum sem hún hentar. Heilbrigðisstarfsfólk getur farið yfir mismunandi úrræði, ávinning og áhættu út frá þínum aðstæðum.

Það er því ekki nauðsynlegt að láta sig hafa erfið einkenni án þess að kanna hvað sé hægt að gera.

Hvaða Venja leið gæti átt við?

Breytingaskeiðið er ekki eins hjá öllum konum. Tíðahringurinn, helstu einkennin og það hvort tíðahvörf séu að baki skipta meira máli en aldurinn einn þegar þú velur þér daglega næringarrútínu.

Erupt

Ef mikil óþægindi eða verkir tengdir tíðahringnum eru það sem þú ert fyrst og fremst að horfa á getur Erupt verið viðeigandi Venja leið. Nýir eða versnandi verkir eiga þó alltaf að fá viðeigandi mat.

Rise

Rise er Venja dagpakkinn sem er hannaður með breytingaskeiðið í huga. Skoðaðu nákvæma samsetningu og næringarupplýsingar á vörusíðunni.

Embrace

Embrace er Venja dagpakkinn fyrir konur eftir tíðahvörf. Skoðaðu nákvæma samsetningu og næringarupplýsingar á vörusíðunni.

Samsetning pakkanna er ólík. Ef þú ert ekki viss hvar þú átt að byrja getur Venja prófið hjálpað þér að finna leið sem passar við þitt lífsskeið og helstu þarfir.

Bætiefni koma ekki í stað fjölbreytts mataræðis eða læknismeðferðar þegar hennar er þörf.

Algengar spurningar um breytingaskeiðið

Á hvaða aldri byrjar breytingaskeiðið?

Hjá flestum konum byrjar breytingaskeiðið á aldrinum 45 til 50 ára, en það getur hafist fyrr. Ef þú ert undir 45 ára og tekur eftir breytingum sem gætu bent til tíðahvarfa er gott að ræða þær við lækni.

Hversu lengi varir breytingaskeiðið?

Það er einstaklingsbundið. Hjá mörgum konum stendur það yfir í nokkur ár áður en tíðahvörf verða. Sum einkenni geta haldið áfram eftir tíðahvörf.

Get ég orðið ólétt á breytingaskeiðinu?

Já. Egglos getur enn átt sér stað þótt blæðingar séu orðnar óreglulegar. Ef þú vilt ekki verða þunguð er mikilvægt að nota viðeigandi getnaðarvörn og fá ráðgjöf um hvenær óhætt er að hætta henni.

Þarf ég blóðprufu til að vita hvort ég sé komin á breytingaskeiðið?

Yfirleitt ekki ef þú ert eldri en 45 ára og með dæmigerð einkenni. Hormónagildi sveiflast mikið á þessu tímabili og því er ein blóðprufa oft ekki gagnleg til greiningar.

Get ég verið á breytingaskeiðinu þótt ég sé enn með reglulegar blæðingar?

Já. Einkenni geta byrjað áður en þú tekur eftir greinilegum breytingum á tíðahringnum.

Ef mamma mín fann lítið fyrir breytingaskeiðinu, mun ég þá líka sleppa vel?

Ekki endilega. Erfðir geta haft áhrif á hvenær tíðahvörf verða, en upplifun hverrar konu er mismunandi.

Það sem gott er að muna

Breytingaskeiðið getur byrjað löngu áður en blæðingar hætta. Fyrstu einkennin eru ekki alltaf hitakóf. Stundum eru það breytingar á svefni, tíðahringnum eða líðan sem þú tekur fyrst eftir.

Þú þarft ekki að þekkja öll einkennin til að taka eftir því að eitthvað hafi breyst. Og þú þarft heldur ekki að finna út úr öllu sjálf.

Ef þér líður öðruvísi en áður er gott að fylgjast með breytingunum og leita ráða þegar þörf er á. Það getur verið fyrsta skrefið í að skilja betur hvað er að gerast.

Heimildir