Næringartafla Iron lady

Ráðlagður dagskammtur: Eitt hylki á dag með mat og fullu glasi af vatni, eða eftir ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks.

Í ráðlögðum dagskammti Magn %RDS konur 18–50 ára*
Járn (járnbisglycinate chelate (Ferrochel®)) 15 mg 100%
C-vítamín (askorbínsýra) 80 mg 84%

Virk innihaldsefni: Askorbínsýra, járnbisglycinate chelate (Ferrochel®).

Önnur innihaldsefni: Hrísmjöl (burðarefni), HPMC (hýdroxýprópýlmetýlsellulósi) vegan hylki, miðlungskeðju þríglýseríðduft úr kókos (kekkjavarnarefni), Nu-FLOW® náttúrulegt hrísgrjónaþykkni (kekkjavarnarefni).

Ferrochel® er skráð vörumerki Balchem Corporation.

Notkun og skammtar

Taktu eitt hylki á dag, eða samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks. Til að stuðla að sem bestri upptöku mælum við með að taka Iron Lady fastandi að morgni með fullu glasi af vatni, eða með mat ef það fer betur í magann. Ef þú tekur hylkið fastandi er best að bíða í 30–60 mínútur með kaffi eða te, þar sem hvort tveggja getur dregið úr upptöku járns.

Forðastu að taka Iron Lady á sama tíma og te, kaffi, gosdrykki eða mjólkurvörur. Forðastu einnig að taka það á sama tíma dags og bætiefni sem innihalda kalk (t.d. Nurture og Embrace), þar sem kalk getur einnig dregið úr upptöku járns.

Eitt hylki (15 mg) gefur 100% af ráðlögðum dagskammti fyrir konur 18–50 ára samkvæmt NNR 2023 og hentar flestum konum. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt hærri skammt út frá blóðprufu má taka allt að 4 hylki á dag. Skammtur umfram eitt hylki á dag ætti þó alltaf að vera ákveðinn af lækni eða ljósmóður.

Hversu lengi þú tekur Iron Lady fer eftir ástæðunni. Ef þörfin er viðvarandi, til dæmis vegna mikilla tíðablæðinga eða mikillar hreyfingar, getur Iron Lady verið hluti af daglegri rútínu svo lengi sem þörfin er til staðar. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt Iron Lady eftir blóðprufu skaltu fylgja þeirra ráðleggingum. Járnstaða er almennt endurmetin með blóðprufu eftir 3–6 mánuði.

Hvernig Iron Lady passar með dagpakkanum þínum

Iron Lady er hönnuð til að taka samhliða Venja dagpakkanum þínum og bætir við auknu járni ofan á það sem dagpakkinn inniheldur.

Dagpakkinn þinn Járn í dagpakka Samtals járn með Iron Lady
Essential 6,1 mg 21,1 mg
Support 6,1 mg 21,1 mg
Prepare 15,0 mg 30,0 mg
Create 17,0 mg 32,0 mg
Nurture & Embrace 0,0 mg 15,0 mg
Rise & Erupt 6,0 mg 21,0 mg

Með einu hylki á dag eru allar samsetningar vel innan efri marka daglegrar inntöku. Ekki er mælt með að heildarinntaka járns fari yfir 60 mg á dag. Ef heilbrigðisstarfsfólk hefur ráðlagt 3 eða fleiri hylki samhliða Create getur samanlögð inntaka farið yfir þolanleg efri mörk. Slíkur skammtur ætti aðeins að vera tekinn samkvæmt ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks, þar sem járn getur safnast upp í líkamanum.

Neytið ekki meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.

Neysla fæðubótarefna kemur ekki í stað fjölbreyttrar fæðu.

Geymist á þurrum stað, varið gegn hita og ljósi. Geymið þar sem börn ná ekki til.

Eins og með önnur fæðubótarefni skal leita ráðlegginga læknis fyrir notkun ef tekin eru blóðþynnandi lyf eða önnur lyf. Barnshafandi konur og konur með barn á brjósti skulu ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsfólk fyrir notkun.