Prepare vítamínpakki

7.990 kr. Uppselt
Fyrir getnað og fyrstu vikur meðgöngu
Fyrir getnað
Meðganga vika 0-13

  • Daglegi pakkinn þinn þegar þú ert að reyna að verða ólétt eða á fyrsta þriðjungi meðgöngu, með þeim næringarefnum sem skipta mestu máli strax frá byrjun.
  • Hannaður samkvæmt norrænum næringarráðleggingum með virku fólati, fólínsýru, járni, joði, 300 mg DHA og kólíni.
  • Líkaminn byrjar undirbúninginn áður en þú veist að þú ert ólétt. Þess vegna skiptir máli að byrja snemma.
Hvað er í pakkanum?

Dagpakki sem vinnur með þér

  • 1x Core Essential Multivitamin Pre-Conception & First Trimester fjölvítamín sem er hannað fyrir tímabilið áður en getnaður á sér stað og fyrsta þriðjung meðgöngu. Inniheldur fólat í tveimur formum, járn, joð, kólín, B12-vítamín og D-vítamín. Fólat styður meðal annars eðlilega blóðmyndun og vöxt vefja á meðgöngu.
  • 2x Vegan omega 3 (úr smáþörungum Schizochytrium sp.) með náttúrulegu piparmyntubragði 300 mg DHA og EPA. Inntaka DHA hjá móður stuðlar að eðlilegum þroska heila og augna barnsins.
  • 1x Magnesíum bisglycinate magnesíum á formi sem nýtist vel og fer vel í maga. Styður meðal annars eðlilega vöðvastarfsemi og hjálpar til við að draga úr þreytu.
Afhverju að byrja undirbúa snemma?

Líkaminn vinnur mikilvæga undirbúningsvinnu á allra fyrstu vikum meðgöngu, oft áður en þungunarpróf sýnir jákvæða niðurstöðu. Fólat gegnir lykilhlutverki á þessu tímabili og því er mikilvægt að huga að því um leið og þú byrjar að reyna að verða ólétt, ekki aðeins eftir að meðganga hefur verið staðfest.

Dagleg inntaka fólínsýru í formi fæðubótar eykur fólatstöðu móður. Lág fólatstaða móður er áhættuþáttur fyrir myndun taugagangagalla hjá fóstri. Jákvæðu áhrifin fást með daglegri inntöku 400 míkrógramma af fólínsýru í formi bætiefna, í að minnsta kosti einn mánuð áður en getnaður á sér stað og fram að þremur mánuðum eftir getnað. Prepare er hannaður til að veita þér þetta frá upphafi.

Tvö form af fólati, af ástæðu

Prepare inniheldur fólat í tveimur formum því þau hafa ólíkt hlutverk.

  • Virkt fólat (5-MTHF) er formið sem líkaminn getur nýtt beint og hjálpar til við að mæta daglegri þörf.
  • Fólínsýra (400 míkrógrömm) er það form sem mælt er með áður en getnaður á sér stað og á fyrstu vikum meðgöngu.

Saman styðja þau bæði við daglega fólatþörf og þær sérstöku þarfir sem skipta mestu máli á allra fyrstu stigum meðgöngu.

Næringarefni

Næringarefnin sem styðja þig

  • Fólat (5-MTHF) og fólínsýra styðja eðlilega blóðmyndun og vöxt vefja á meðgöngu. Dagleg inntaka fólínsýru sem fæðubótar eykur fólatstöðu móður. Lág fólatstaða móður er áhættuþáttur fyrir myndun taugagangagalla hjá fóstri. Jákvæðu áhrifin fást með daglegri inntöku 400 míkrógramma af fólínsýru, í að minnsta kosti einn mánuð áður en getnaður á sér stað og fram að þremur mánuðum eftir getnað.
  • DHA inntaka DHA hjá móður stuðlar að eðlilegum þroska heila og augna barnsins.
  • Sink styður eðlilega frjósemi og æxlun ásamt eðlilegri frumuskiptingu.
  • Járn styður eðlilega myndun rauðra blóðkorna og eðlilegan flutning súrefnis í líkamanum.
  • C-vítamín styður eðlilegt frásog járns og eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.
  • Joð styður eðlilega starfsemi skjaldkirtils.
  • B6-vítamín styður eðlilega hormónastarfsemi.
  • D-vítamín og K-vítamín styðja viðhald eðlilegra beina.
  • Fólat, járn, magnesíum og B12-vítamín hjálpa til við að draga úr þreytu.
  • Fólat, járn, selen, B12-vítamín, C-vítamín, D-vítamín og sink styðja eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.
  • E-vítamín stuðlar að því að vernda frumur gegn oxunarálagi.
Ávinningur

Hannaður fyrir upphafið
Við þróuðum Prepare út frá norrænum næringarráðleggingum og næringargögnum íslenskra kvenna fyrir tímabilið frá því að þú byrjar að reyna að verða ólétt og fram að lokum fyrsta þriðjungs meðgöngu. Dagpakkinn inniheldur bæði form fólats og kólín, sem vantar í mörg fjölvítamín fyrir barnshafandi konur.

Ein einföld venja
Fjölvítamín, Algae olía og magnesíum í einum dagpakka. Vítamín, steinefni og fitusýrur sem skipta máli á þessu lífsskeiði. Minna að muna. Minna að velta fyrir sér.

Fyrir hvern er þessi vara?

Prepare hentar þér ef:

  • Þú ert að reyna að verða ólétt eða ert að undirbúa meðgöngu.
  • Þú ert á fyrsta þriðjungi meðgöngu, fram að 13. viku.
  • Þú vilt gefa líkamanum góðan næringargrunn strax frá upphafi.

Þegar 14. vika hefst tekur Create við og styður þig út meðgönguna og fyrstu vikurnar eftir fæðingu.

Bara það sem þú þarft
Við setjum saman dagpakkana út frá því sem konur fá ekki nóg af úr fæðu á hverju lífsskeiði, ekki út frá hæstu mögulegu skömmtum. Hver framleiðslulota er sjálfstætt prófuð af Eurofins fyrir meðal annars þungmálmum.

Prepare vítamínpakki
7.990 kr.
Vöruupplýsingar

CORE ESSENTIAL MULTIVITAMIN PRE-CONCEPTION & FIRST TRIMESTER

Recommended use: Take one pack daily with food and a full glass of water.

Serving size: 1 capsule | Servings per container: 30

Supplement Facts Amount Per Serving %RI Pregnant Trimester 1*
Biotin 40 mcg 100%
Choline (as choline bitartrate (Vitacholine ®)) 132 mg 32%
Folate (400 mcg as folic acid, 400 mcg as (6S)-5-MTHF*** glucosamine salt (Quatrefolic®)) 800 mcg 133%
Iodine (as potassium iodide) 80 mcg 46%
Iron (as ferrous bisglycinate chelate (Ferrochel®)) 15 mg 63%
Selenium (as sodium selenite) 24 mcg 30%
Vitamin B2 (as riboflavin 5'-phosphate) 0,1 mg 6%
Vitamin B5 (as calcium pantothenate) 1,0 mg 20%
Vitamin B6 (as pyridoxal 5'-phosphate) 1,6 mg 100%
Vitamin B12 (as methylcobalamin) 200 mcg 4444%
Vitamin C (as ascorbic acid) 33 mg 31%
Vitamin D3 (as cholecalciferol from lichen (vegan)) 25 mcg (1000 IU) 250%
Vitamin E (from natural mixed tocopherols) 1,0 α-TE 10%
Vitamin K2 (as menaquinone-7 (K2VITAL®)) 65 mcg 100%
Zinc (as zinc bisglycinate chelate) 0,3 mg 3%

Active Ingredients: Choline bitartrate (Vitacholine®), ascorbic acid, ferrous bisglycinate chelate (Ferrochel®), pyridoxal 5'-phosphate, calcium pantothenate, natural mixed tocopherols, zinc bisglycinate, riboflavin 5-'phosphate, folic acid, (6S)-5-MTHF*** glucosamine salt (Quatrefolic®), methylcobalamin, potassium iodide, menaquinone-7(K2VITAL®), biotin, cholecalciferol from lichen (vegan), sodium selenite.

Other Ingredients: Rice flour (carrier), HPMC (hydroxypropylmethylcellulose) vegan capsule, medium chain triglyceride oil powder from coconut (anticaking agent), Nu-FLOW® natural rice concentrate (anticaking agent).

Quatrefolic® is a registered trademark of Gnosis by Lesaffre. Ferrochel® and Vitacholine® are registered trademarks of Balchem Corporation.

VEGAN OMEGA 3 (from microalgae Schizochytrium sp.) with natural peppermint

Serving size: 2 capsules | Servings per container: 30

Supplement Facts Amount Per Serving %RI Pregnant Trimester 1*
Algae oil 1000 mg **
Thereof: DHA 300 mg **
EPA 150 mg **

Active Ingredients: Vegan omega 3 from microalgae.

Other Ingredients: HPMC (hydroxypropylmethylcellulose) vegan capsule, rosemary extract, natural peppermint flavouring.

MAGNESIUM BISGLYCINATE

Serving Size: 1 caspule | Servings per container: 30

Supplement Facts Amount Per Serving %RI Pregnant Trimester 1*
Magnesium (as magnesium bisglycinate) 100 mg 33%

Active Ingredients: Magnesium bisglycinate.

Other Ingredients: HPMC (hydroxypropylmethylcellulose) vegan capsule, rice flour (carrier), medium chain triglyceride oil powder from coconut (anticaking agent), Nu-FLOW® natural rice concentrate (anticaking agent).

Do not exceed recommended daily dose. Supplement should not be used as a substitute for a varied diet. Store in a cool, dry place.

Caution: As with any other supplement, consult physician if taking any anti-coagulant (such as warfarin, coumadin, heparin) or other medication, or have a medical condition.

Warning: Accidental overdose of iron-containing products is a leading cause of fatal poisoning in children under 6. Keep this product out of reach of children. In case of accidental overdose, call a doctor or poison control center immediately.

AF HVERJU VENJA?

Flest fjölvítamín eru gerð fyrir alla. Þitt er það ekki.

Næringarþarfir kvenna breytast í gegnum lífið. Þess vegna er hver vítamínpakki frá Venju hannaður fyrir ákveðið lífsskeið og inniheldur þau næringarefni sem eiga best við hverju sinni.

Hver vítamínpakki er sérsniðin að þínu lífsskeiði. Þegar þarfirnar breytast skiptirðu yfir í annan.

Hefðbundið fjölvítamín

OKKAR NÁLGUN

Hefðbundið fjölvítamín

Sama formúla fyrir alla

OKKAR NÁLGUN

Ein formúla fyrir þitt lífsskeið

Hefðbundið fjölvítamín

Mörg bætiefni sem þarf að halda utan um

OKKAR NÁLGUN

Einn dagpakki með öllu sem þú þarft

Hefðbundið fjölvítamín

Sama rútínan ár eftir ár

OKKAR NÁLGUN

Dagpakki sem breytist þegar þarfirnar breytast

Hefðbundið fjölvítamín

Næringarefni valin hvert fyrir sig

OKKAR NÁLGUN

Næringarefni valin til að vinna saman

Einn pakki fyrir það lífsskeið sem þú ert á núna. Annar þegar þarfir þínar breytast.

Venja sem virkar

Aldrei meira en þú þarft

Líkaminn þinn er ekki alltaf eins. Og bætiefni sem á að henta öllum er í raun ekki sérsniðið að neinum.

Það sem þú þarft 25 ára er ekki það sama og líkaminn kallar á á meðgöngu eða breytingaskeiði. Þess vegna hönnum við ekki eina samsetningu og vonum að hún henti. Hver Venja pakki er hannaður fyrir ákveðið lífsskeið, út frá því sem það skeið kallar á, og engu umfram það.

Þetta er hugsunin á bak við Venja. Ekki fleiri innihaldsefni. Heldur þau réttu, fyrir það lífsskeið sem þú ert á.

Sérhvert innihaldsefni hefur tilgang

Við ákvörðum skammta út frá bilinu á milli þess sem fæðan gefur þér og þess sem líkaminn þarf á þessu lífsskeiði, ekki út frá hæstu tölunni sem kemst fyrir á umbúðunum.

Næringarefni fer aðeins í samsetninguna þegar skýr og studd ástæða er fyrir því. Ef innihaldsefnið þjónar ekki ákveðnum tilgangi, sleppum við því.

Engin tískuefni í málamyndaskömmtum. Ekkert sett inn bara til að lengja innihaldslistann. Samsetningarnar okkar byggja á birtum rannsóknum og við viljum frekar sleppa innihaldsefni en bæta því við til málamynda.

Form sem líkaminn getur nýtt

Bætiefni koma í ólíkum formum og þau eru ekki öll eins. Við veljum form sem frásogast vel og henta til daglegrar notkunar: virk form þar sem þau skipta máli, steinefni sem eru valin með frásog og þol í huga og hráefni af vegan uppruna þar sem þau standa sig jafn vel. Plöntuhylki, lágmark af aukaefnum og engin gervisætuefni.

Hver framleiðslulota er prófuð

Hver framleiðslulota frá Venja er prófuð hjá Eurofins, einni stærstu óháðu rannsóknarstofu Evrópu. Þar er meðal annars skimað fyrir þungmálmum, örverum og náttúrulegum eiturefnum.

Bætiefnin okkar eru framleidd í IFS-vottaðri verksmiðju í Hollandi og hver framleiðslulota er rekjanleg alla leið frá hráefni að fullunnum dagpakka. Við geymum greiningarvottorð fyrir hverja framleiðslulotu. Ef þú vilt sjá vottorðið fyrir þína lotu þarftu bara að hafa samband.

Við höfum gert rannsóknarvinnuna, svo þú þurfir þess ekki.

Vörur eftir lífsskeiði

Bætiefni fyrir breytilegar þarfir kvenna, frá daglegum stuðningi til meðgöngu, brjóstagjafar, breytingaskeiðs og áranna þar á eftir.